Aðeins 11 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu sem kosta undir 30 milljónum

„Það er alltaf verið að byggja eitthvað en það er langt frá því að vera nóg,“ segir fasteignasalinn Hannes Steindórsson. Hann telur ástæðu gríðarlega verðhækkana á fasteignamarkaði þá einföldu staðreynd að framboð annar ekki eftirspurn.
Hannes var gestur Björns Inga Hrafnssonar í þættinum Eyjunni á ÍNN síðastliðið fimmtudagskvöld. Hann segir að ástandið hafi aldrei verið jafn slæmt og það er í dag. Þá þykir Hannesi ólíklegt að markaðurinn nái jafnvægi á næstu árum.
Hannes nefnir að um 400 til 500 eignir í fjölbýli séu til sölu á öllu höfuðborgarsvæðinu og þar af eru 11 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu sem séu 70-100 fermetrar og sett verð er undir 30 milljónum.
Hér að neðan má sjá viðtalið við Hannes í heild sinni
Eyjan_23FEB17 p2 from inntv on Vimeo.