fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Brynjar Már bráðkvaddur í Kenía: „Hann var frábær pabbi“

Brynjar Már varð bráðkvaddur í Kenía – Lætur eftir sig sjö ára einkadóttur

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 20. desember 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta er hræðilega sorglegt. Ég og Brynjar misstum föður okkar á táningsaldri þannig að maður getur að einhverju leyti sett sig í spor dóttur hans. Hún er hins vegar bara sjö ára gömul þannig að maður veit ekki alveg hvort hún átti sig á hversu endanlegt þetta er,“ segir Jón Gunnar Bjarkan í samtali við DV. Eldri bróðir Jóns Gunnars, Brynjar Már Bjarkan, lést í Kenía þann 28. nóvember síðastliðinn, aðeins 38 ára gamall. Um hörmulegt slys var að ræða en niðurstaða krufningar var sú að Brynjar Már hefði kafnað á mat eftir að hafa hnigið niður á hótelherbergi sínu. Hann hafði þá aðeins dvalið tvo daga í landinu. Brynjar Már lætur eftir sig sjö ára gamla einkadóttur, Berglindi Ninju, en vinir og ættingjar hafa blásið til söfnunar fyrir ungu stúlkuna.

Fékk forsetastyrk í HR

Brynjar Már var jarðsettur í gær, mánudag, við fallega athöfn frá Grafarvogskirkju. „Hann var sannur vinur vinna sinna og vinmargur eftir því. Það voru örugglega um fjögur hundruð manns sem mættu og okkur fjölskyldunni þótti afar vænt um það,“ segir Jón Gunnar. Hann talar hlýlega um bróður sinn sem var margt til lista lagt. Brynjar Már hafi verið afburðanámsmaður en áfengið hafði verið honum fjötur um fót. „Hann tók fyrsta árið í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og rúllaði því upp, þrátt fyrir að sinna fullri vinnu. Hann fékk boð um svokallaðan forsetastyrk og þar með ókeypis skólagjöld. En þá féll hann því miður og flosnaði upp úr náminu,“ segir Jón Gunnar.

„Lífið lék við hann“

Það hafi þó einkennt Brynjar Má að hann hafi ekki látið í minni pokann fyrir breyskleika sínum heldur barist af harðfylgi og haft sigur. „Síðustu fjögur ár voru búin að vera hans bestu og hann var afar hamingjusamur. Hann menntaði sig í húsasmíði og vann við smíðarnar. Að auki vann hann með mér við hugbúnaðargerð hjá bandarísku tæknifyrirtæki. Hann var byrjaður að þéna afar vel og lífið lék við hann,“ segir Jón Gunnar. Brynjar Már hafi ferðast víða á þessu tímabili og þar á meðal farið í ógleymanlega ferð með stórfjölskyldunni til Frakklands í sumar að fylgjast með íslenska landsliðinu. „Við eigum eftir að lifa lengi á þeim minningum,“ segir Jón Gunnar.

Fullt hótelherbergi af gjöfum

Það sem skipti Brynjar Má þó öllu máli var dóttir hans, hin sjö ára gamla Berglind Ninja. „Hann elskaði hana gjörsamlega út af lífinu og var frábær pabbi. Hann bauð henni nýlega í pabbaferð til Kaupmannahafnar og var ótrúlega duglegur að gera alls konar skemmtilega hluti með henni,“ segir Jón Gunnar. Þegar fjölskyldan fékk tilkynningu um andlátið þá fór systir þeirra bræðra, sem búsett er í Frakklandi, til Kenía til þess að bera kennsl á líkið og taka saman veraldlegar eigur hans þar. Þegar hún kom inn á hótelherbergið þar sem harmleikurinn átti sér stað þá var það fullt af ýmsum gjöfum og munum handa Berglindi Ninju.

Eins og gefur að skilja verða jólin þungbær fyrir ættingja og vini Brynjars Más. „Hann var nýlega fluttur í íbúð í Vesturbænum sem að hann var afar stoltur af. Hann vildi endilega bjóða fjölskyldunni til sín um jólin og það höfðum við ákveðið. Núna er hann farinn en við ætlum engu að síður að hittast öll í íbúðinni hans, halda jólin hátíðleg og minnast hans,“ segir Jón Gunnar.

Þeir lesendur sem vilja styðja dóttur Brynjars, Berglindi Ninju, er bent á eftirfarandi reikningsupplýsingar: 0114 – 18 – 750869, kennitala 091009 -2340.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”