„Svona er móðurhlutverkið í raun og veru“
Við fyrstu sýn virðist myndin sem birtist hér að ofan vera hefðbundin „mömmusjálfa“ sem sýnir innilega stund á milli móður og barns. En svo er aldeilis ekki.
Mömmubloggarinn Sophia Cachia, sem er með 152 þúsund fylgjendur á Instagram, deildi myndinni á miðvikudaginn og skrifaði ummæli við hana sem gerði að verkum að „Like-in“ og deilingarnar á hana eru orðnar nokkur þúsund.
Við myndina skrifaði Sophia: „Þið haldið örugglega öll að þetta sé enn ein krúttlega myndin af mér og Bobby. En staðreyndin er hinsvegar sú að ég tók hana á meðan ég sat á klósettinu og var að kúka. Fannst ég bara þurfa að láta ykkur vita. Sérstaklega ykkur sem eruð að hugsa um að eignast börn á næstunni. Svona er móðurhlutverkið í raun og veru. Góðar stundir.“