

Karlmaður á fertugsaldri lét lífið í umferðarslysi á Reykjanesbrautinni í dag, skammt frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þetta staðfestir lögreglan á Suðurnesjum í samtali við DV. Fjölskyldu mannsins hefur verið greint frá andlátinu. Stundin greinir frá því að tvær bifreiðar hafi rekist saman og svo virðist sem að þær hafi komið úr gagnstæðri átt.
Tveir munu hafa verið fluttir á heilsugæsluna í Keflavík með minniháttar meiðsli.
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar tildrög slyssins og biður þá er kunna að hafa orðið vitni að því að hafa samband í síma 444-2299.
Líkt og DV greindi frá í morgun átti annað alvarlegt umferðarslys sér stað á Reykjanesbraut nú í morgun, hjá Vallarhverfi í Hafnarfirði. Lögreglumaður á bifhjóli lenti þar í slysi en hann var að aðstoða sjúkrabíl í forgangsakstri.
Lögreglubifhjólinu var ekið í forgangsakstri austur Reykjanesbraut þegar ökumaður bifreiðar á leið vestur tók U-beygju og í veg fyrir bifhjólið, sem var á talsverðri ferð. Lögreglumaðurinn og ökumaður bifreiðarinnar slösuðust mikið, en eru ekki í lífshættu.