fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Tesla-bílar sem aldrei komu bundu enda á rafbílaævintýrið

Dreymdi um að rafbílavæða Ísland – Even hf. í þrot – Breyttu hugarfari Íslendinga til rafbíla

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 11. október 2016 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta var tilraun sem náði ekki alla leið en olli því að fólk lítur jákvætt á rafbíla í dag,“ segir athafnamaðurinn Gísli Gíslason, eigandi rafbílasölunnar Even hf., sem úrskurðuð var gjaldþrota þann 21. september síðastliðinn. Gísli og Even voru frumkvöðlar á sviði innflutnings og sölu á rafbílum hér á landi og höfðu frá upphafi það háleita markmið að rafbílavæða Ísland.

Gjaldþrot Even má að sögn Gísla rekja til 50 bíla sem pantaðir höfðu verið, en aldrei skiluðu sér til Evrópu og Íslands til afhendingar á réttum tíma. Fyrirtækið hafi ekki haft bolmagn til að lifa af slíkar tafir. Hann segir margt hafa breyst síðan Even hóf rafbílabyltinguna fyrir alvöru á Íslandi, sem nú er komin á fulla ferð, og kveðst líta svo á að hann eigi smá þátt í þeim árangri sem náðst hefur á undanförnum árum.

Tafir reyndust banabitinn

Það var í lok árs í fyrra sem Even hætti starfsemi að sögn Gísla vegna erfiðleikanna, en fyrirtækið hafði þá meðal annars verið með sýningarsal í Smáralind í Kópavogi og Gísli um árabil barist fyrir því að vekja athygli á kostum rafbíla hér á landi.

„Þá höfðum við átt von á bílum sem komu ekki, það var m.a. mikil töf á Model X hjá Teslu þannig að við lifðum það ekki af. Við erum auðvitað bara að gera þetta sjálfir fyrir eigin pening þannig að við höfðum ekki þol í bið. Við áttum 50 bíla í pöntun sem komu ekki. Þetta voru bílar sem áttu að koma fyrir ári þannig að væntanlegir kaupendur bara afpöntuðu, skiljanlega, því fólk getur ekki beðið endalaust eftir bílunum sínum. Menn keyptu sér bara aðra bíla. Það fór mikið púður í að selja þessa bíla, það er dýrt að selja bíl en þegar þú færð þá ekki og getur ekki afhent þá, þá er það vesen. En þetta er eins og gengur og það þýðir ekkert að væla.“

Selt fyrir hálfan milljarð

Even hafði meðal annars flutt inn og selt Tesla Model S-lúxusrafbílana sem gátu kostað á bilinu 12–18 milljónir króna stykkið. Gísli segir að Even hafi náð að selja 50 Tesla-rafbíla á fyrstu árunum sem þeir voru til sölu hér á landi þar til fyrirtækið hætti starfsemi. Áætla má því að hér á landi hafi Íslendingar keypt Tesla-rafbíla fyrir að minnsta kosti hálfan milljarð og ljóst að markaður og eftirspurn var fyrir öðru eins til viðbótar.

Gjörbreytt viðhorf

Þrátt fyrir að Even-rafbílaævintýrið hafi endað með þessum hætti þá er ljóst að sem frumkvöðlar á markaði hafi Gísli og félagar átt sinn þátt í þeirri vitundarvakningu sem orðið hefur meðal Íslendinga um ágæti rafbíla.

„Þetta eru fyrstu mánuðirnir sem ég sé að allir eru orðnir mjög jákvæðir í garð rafbíla. Þegar við byrjuðum þá var litið á okkur sem skrýtna að vera að standa í þessu. Ég er allavega mjög ánægður með að þetta hafi skilað því að Ísland verður rafbílavætt. Nú tók ég eftir því að Orkusalan er að gefa öllum sveitarfélögum landsins hleðslustöð fyrir rafbíla, sem er frábært. Fyrir tveimur árum vildu menn ekki einu sinni setja upp staura. Það hefur margt breyst og ég er ánægður með það. Þegar við byrjuðum fluttum við inn rafbíl númer 10 til Íslands, og ætli þeir séu ekki orðnir um þúsund í dag. Það þarf ekki lengur að segja að rafbílar séu umhverfisvænni. Rafbílar eru einfaldlega betri en bensínbílar,“ segir Gísli og bendir á að Þjóðverjar hafi á dögunum stigið mikilvægt skref með pólitískri ákvörðun um að samþykkja að banna bensín- og dísilbílaframleiðslu frá og með árinu 2030. Ákvörðun sem gæti haft víðtæk áhrif um allt Evrópusambandið, sem og víðar.

„Þannig að ef einhver er að hugsa um framtíðina þá er hann ekki að fara að setja peninga í að þróa bensínbílinn betur. Allt svona tekur tíma og er erfitt og ég hefði svo sannarlega viljað að öll plönin hefðu gengið upp, en það eru aðrir sem taka við keflinu. Það er orðið ljóst að nær öll bílaumboðin leggja áherslu á þetta í dag, sem var ekki þegar við byrjuðum, þannig að það er mjög jákvætt,“ segir Gísli og bendir á að Even hafi komið því af stað að umboðin fóru að flytja inn rafbíla líka, enda hafi Even flutt inn fjölmargar tegundir rafbíla aðrar en Tesla.

Rafbílarnir frá Tesla Motors eru einstaklega glæsilegir lúxusbílar sem gjörbreytt hafa hugmyndum fólks og skoðunum á rafbílum.
Model S Rafbílarnir frá Tesla Motors eru einstaklega glæsilegir lúxusbílar sem gjörbreytt hafa hugmyndum fólks og skoðunum á rafbílum.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mun áfram berjast fyrir rafbílnum

Rafbílum hefur fjölgað talsvert í umferð hér á landi á umliðnum árum. Aðspurður hvort hann eigni sér einhvern þann árangur sem náðst hefur segir Gísli að hann geti ekki neitað því.
„Ég held ég eigi smá þátt í þessu. Þó að við höfum ekki náð að lifa af til að sjá þetta fara á fulla ferð þá áttum við allavega þátt í því.“

En hefur hann, sem einn helsti talsmaður rafbíla á Íslandi, þá lokið leik á þessum vettvangi í ljósi gjaldþrots Even?

„Nei, ég ætla áfram að fylgjast með að þetta haldi áfram hér á Íslandi og reyna að stuðla að því með öllum hætti.“

Rafbílaæði með Model 3

Nýverið kynnti Tesla fyrir umheiminum áform sín um Model 3, rafbílinn sem beðið er með mikilli eftirvæntingu og hundruð þúsunda pantana voru gerðar fyrir þennan nýja hagkvæma og glæsilega fjölskyldubíl sem þó er ekki væntanlegur á markað fyrr en í fyrsta lagi árið 2018. Margir Íslendingar hafa lagt inn pöntun fyrir Model 3. Aðspurður hvort ekki sé svekkjandi að missa af þeirri sprengingu segir Gísli svo ekki vera.

„Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér og ég hef ekki miklar áhyggjur af því. Það voru margir sem höfðu sett sig á lista hjá okkur sem ég afhenti bara til Tesla og þeir geta þá haft samband við þá,“ segir Gísli um Model 3.

En hvað þýðir gjaldþrotið fyrir framtíð Tesla-bíla á Íslandi? Gísli segir að Even hafi ekki verið með umboð fyrir Tesla enda sé enginn umboðsaðili fyrir Tesla. Tæknifyrirtækið hafi einbeitt sér að löndum sem það eru sjálft með starfsemi í en Even fékk leyfi til að panta beint frá verksmiðjunni og koma með til landsins. Í dag geti fólk farið inn á tesla.com og pantað sér bíla, því fyrirtækið sé farið að afhenda bíla á svæðum sem það eru sjálft ekki með aðstöðu í. Þeir séu afhentir í Hollandi.

„Það er ekkert dýrara í dag að kaupa bílinn beint af þeim en í gegnum okkur og fá hann afhentan þar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli
Fréttir
Í gær

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“