„Þetta er ívið betra en súkkulaði meira að segja á góðum degi“

Kári Stefánsson, forstjóri íslenskar erfðargreiningar, hefur síðust misseri unnið ötullega að því að skapa vitundarvakningu meðal almennings um fjármagnsskort í heilbrigðiskerfinu.
Auk þess sem Kári gaf íslenska ríkinu, fyrir hönd íslenskrar erfðargreiningar, jáendaskanna að gjöf á síðasta ári, þá hefur hann gagnrýnt stjórnvöld harðlega fyrir að hafa vannært íslenskt heilbrigðiskerfi með þeim afleiðingum að það sé ekki þess megnugt að sinna hlutverki sínu sem skyldi.
Kári heldur úti síðunni endurreisn.is þar safnaði hann rúmlega 85 þúsund undirskriftum Íslendinga sem hann færði æðstu ráðamönnum landsins í vor. Markmið Kára er að Alþingi verji árlega 11 prósent af vergri landsframleiðslu til reksturs heilbrigðiskerfisins.
Í viðtali á Stundinni í dag segir Kári hreint út að hann hafi í gegnum tíðina staðið sig vel sem vísindamaður og lagt margt af mörkum á því sviði.
„En hin hliðin er að mér finnst ég hafa brugðist þeim sem ég ætti síst að hafa brugðist. Ef maður gerði þetta allt upp með debit og kredit, þá held ég að ég myndi enda uppi sem einhvers konar skíthæll.“
Að sama skapi vill Kári ekki fallast á að barátta hans fyrir bættu heilbrigðiskerfi útiloki að hann sé „skíthæll.“
„Það er fullt af alls konar skíthælum sem hafa lagt upp með alls konar baráttu. Kannski var þessi barátta öll saman byggð á fölskum forsendum. Kannski var ég bara að leita eftir einhvers konar syndaaflausn,“ segir Kári í viðtali við Stundina.
Með þessum orðum viðurkennir Kári að það samræmist vel að vera óþverri og vinna að hagsmunamálum samfélagsins.
„Óþverrinn er alltaf að leita að einhverri réttlætingu fyrir því hver hann er. Þess vegna er vinna við góðgerðarmál mjög algeng aðferð til að upphefja sjálfan sig. Að maður geti brosað til fólks og því finnist maður voða kúl og svo framvegis.“
Kári gengst sömuleiðis við því að hans vinna í þágu heilbrigðiskerfisins sé gerð út frá sjálfmiðuðum markmiðum.
„Ég geri þetta til að upphefja sjálfan mig og til að láta sjálfum mér líða vel. Þetta er ívið betra en súkkulaði meira að segja á góðum degi og mér þykir súkkulaði mjög gott.“