fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Ég ætla ekki að láta hann buga mig

Björg Amalía hefur verið ofsótt af fyrrverandi sambýlismanni– Vinir og fjölskylda verða einnig fyrir barðinu á manninum – Kaupfélagsstjóri ætlar að kæra

Björn Þorfinnsson
Miðvikudaginn 3. ágúst 2016 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég brotnaði gjörsamlega niður. Líkaminn eiginlega hrundi og ég gat ekki gengið. Vinir mínir og fjölskylda gáfu mér hins vegar styrk til þess að rísa upp úr þessu og ég er sterkari fyrir vikið,“ segir Björg Amalía Ívarsdóttir sem hefur mátt glíma við látlaust áreiti manns sem hún átti í skammvinnu sambandi við fyrir rúmu ári.

Maðurinn heitir Ari Sigurðsson. „Hann hefur sent flestum sem tengjast mér, meðal annars nágrönnum mínum, nektarmyndir af mér með ósmekklegum skilaboðum. Auk þess hefur Ari endurtekið stofnað Facebook-síðu þar sem hann birtir niðurlægjandi myndir og myndbönd af mér. Þá hefur hann ítrekað áreitt aðra fjölskyldumeðlimi og vini mína.“

Samkvæmt heimildum DV hefur Ari undanfarið herjað á íbúa í fámennu sveitarfélagi Árneshrepps en þangað flúði vinkona Bjargar Amalíu undan áreitinu. Björg Amalía vonar að vilji lögreglustjóra um sérstakt ákvæði til höfuðs eltihrellum nái fram að ganga og geti veitt henni frið.

Allt lék í lyndi til að byrja með

„Við kynntumst á stefnumótasíðu síðasta vor. Ég man að það var farið að verða aðeins sumarlegra og léttara yfir öllu. Til að byrja með sagði hann alla réttu hlutina og gerði allt fyrir mig. Ég mátti varla ná mér í kaffibolla þá var hann stokkinn til að færa mér hann,“ segir Björg Amalía. Hún heldur sjálf á rjúkandi bolla á kaffihúsi í Vesturbænum þar sem við mæltum okkur mót. Augljóst er á öllu hennar fasi að baráttan hefur tekið mikið á hana. „Á tímabili gat ég ekki farið út úr húsi af skömm og það er í raun enn erfitt. Ég ætla hins vegar ekki að láta þetta buga mig og þess vegna vil ég tala um þessa reynslu mína. Ekki síst til þess að hjálpa öðrum sem glíma við eltihrella eða eru fórnarlömb hefndarkláms,“ segir Björg Amalía.

Hrós og niðurlægjandi athugasemdir

Að sögn Bjargar gekk sambandið svo vel að fljótlega var Ari fluttur inn til hennar. Þá skyndilega fór hegðun hans að breytast. „Fljótlega byrjaði hann á því að hrósa mér en á sama tíma koma með niðurlægjandi athugasemd. Til dæmis að buxurnar sem ég væri í væru flottar en að ég væri samt feit. Þetta er aðferð sem er notuð til þess að brjóta fólk niður og því miður tókst honum það. Það er ótrúlegt hvað hugsanir manns brenglast þegar slíkar athugasemdir dynja sífellt á manni,“ segir Björg Amalía. Ástandið versnaði smám saman, hrósyrðunum fækkaði en þeim andstyggilegu fjölgaði þar til þær voru einar eftir.

Segist hafa verið kýld aftur og aftur

Björg Amalía segist hafa upplifað mikla vanlíðan vegna andlegs ofbeldis. Kveðst hún einnig hafa kært Ara fyrir heimilisofbeldi en ekki haldið kærunni til streitu. Hún bætir við að hún hafi verið brothætt á þessum tíma og því guggnað.

„Hann kenndi mér alltaf um allt og ég var farin að trúa því að ég væri gjörsamlega vonlaus. Að hann hefði orðið að stöðva mig með þessum hætti, ítrekuðum kjaftshöggum.“

Hann kenndi mér alltaf um allt og ég var farin að trúa því að ég væri gjörsamlega vonlaus.

Myndband klippt úr samhengi

Ástarsambandið hélt áfram í nokkra mánuði en Björgu Amalíu leið sífellt verr og svo kom að því að hún fékk nóg. „Við vorum heima og vorum búin að neyta áfengis. Þá sprakk ég og vildi henda honum út úr íbúðinni og lífi mínu í eitt skipti fyrir öll. Ég beitti öllum úrræðum til þess að reyna að fá hann til að yfirgefa íbúðina, fyrst í góðu en síðan með hótunum um að hringja á lögregluna,“ segir Björg Amalía. Allt kom fyrir ekki og að sögn hennar hló Ari að orðum hennar og virti hana ekki viðlits. „Hann hæddist alltaf að öllu sem ég sagði og virti mig gjörsamlega að vettugi. Þá datt mér í hug að taka hníf úr eldhúsinu og standa fyrir framan hann á ógnandi hátt. Markmiðið var að hræða hann en áfram hló hann. Í kjölfarið henti ég stól í áttina á honum en það hafði heldur engin áhrif,“ segir Björg Amalía. Meðan á atganginum stóð hafði Ari verið að taka upp myndband sem hann síðar hefur birt hvar sem því hefur verið við komið á netinu.

Þá var stofnuð Twitter-síða með myndum og niðrandi athugasemdum um Björgu og þegar stórviðburðir hafa átt sér stað í íslensku samfélagi hefur síðunni verið deilt með því að merkja síðuna með vinsælum myllumerkjum. Þannig varð blaðamaður vitni að því þegar fréttamiðlar fjölluðu um forsetakosningarnar að síðunni var deilt og hún merkt myllumerkinu #forseti.

Lamdi sig í andlitið með lyklum

Þetta rifrildi átti eftir að enda á óhugnanlegan hátt. „Hann tók allt í einu upp lykla á borðinu og byrjaði að berja sig í andlitið. Síðan hringdi hann í lögregluna og tilkynnti að hann hefði orðið fórnarlamb heimilisofbeldis,“ segir Björg Amalía og hristir höfuðið. Hún segir tilvist myndbandsins vera sára. „Þetta er afar niðurlægjandi enda er ég ekki beint upp á mitt besta í myndbandinu og það er svo gjörsamlega tekið úr samhengi,“ segir Björg Amalía. Þessi uppákoma var kornið sem fyllti mælinn og í kjölfarið tókst henni að koma Ara út af heimili sínu. Síðar kom í ljós að hann hafði stundað það að taka af henni myndir, myndbönd og hljóðupptökur sem hann hefur síðan notað sem vopn gegn henni. „Ég held að hann sé bara búinn að birta brot af því sem er í hans fórum. En ég óttast ekki frekari birtingar, hann getur ekki meitt mig lengur,“ segir Björg Amalía.

Það viðbjóðslega er að þetta gerðist sama dag og amma mín dó. Það vissi hann vel.

Nektarmyndir til nágranna

Þetta var ekki eina opinberlega niðurlægingin sem Björg Amalía mátti þola. Skömmu eftir sambandsslitin fengu íbúar í stigaganginum, sem Björg Amalía býr í, senda nektarmynd af henni og á hana var skrifað að hún væri að selja sig fyrir dóp. Ef leitað er eftir nafni hennar á leitarvélum sést líka ógrynni af Facebook-síðum, færslum á samfélagsmiðlum og myndum af henni í miður skemmtilegu ástandi. Yfirleitt fylgja svívirðileg textaskilaboð með. „Það viðbjóðslega er að þetta gerðist sama dag og amma mín dó. Það vissi hann vel,“ segir Björg Amalía. Hún segir erfitt að upplifa varnarleysi gegn slíkum árásum á mannorð sitt og æru. Lögreglan geti ekkert gert og óratíma taki að fá síðum með slíku efni lokað. Takist það sprettur ný upp með sama efni og ferlið hefst aftur. „Það var hræðilegt að sjá þetta fyrst og að einhverju leyti þá verður þetta alltaf sárt. Ég ætla aftur á móti ekki að láta þetta brjóta mig niður,“ segir Björg Amalía. Samkvæmt upplýsingum DV hefur málið verið í ferli innan lögreglunnar og eru um þrjár vikur síðan það var síðast til afgreiðslu. Þá var Ara gerð grein fyrir því að ef hann héldi áfram ofsóknum sínum yrði farið fram á nálgunarbann.

Brotnar rúður

Áreitið hefur ekki stoppað síðan og meðal annars vaknaði Björg við það að báðar rúðurnar í stofuglugganum hennar molbrotnuðu um miðja nótt. Skuggavera sást hlaupa á brott og Björg Amalía er sannfærð um hver var þar að verki. Áreitið hefur þó ekki aðeins beinst gegn henni heldur einnig flestum sem tengjast henni. ­„Pabbi hefur orðið mest fyrir barðinu á honum. Ég veit í raun ekki af hverju, þeir rifust einu sinni og það virðist hafa verið nóg. Ari veit hversu vænt mér þykir um föður minn og það er kannski ástæðan,“ segir Björg. Meðal annars hefur faðir hennar fengið ógrynnin öll af skilaboðum, bæði rafrænum sem og í bréfapósti, oftar en ekki fylgja hótanir með. Sömu sögu er að segja af öðrum fjölskyldumeðlimum.

Vinkonan flúði út á land

Þá hafa verið stofnaðar fjölmargar síður til höfuðs vinkonu Bjargar Amalíu auk þess sem hún hefur verið áreitt með ískyggilegum hætti. Hún brá á það ráð að flytja út á land og varð Árneshreppur fyrir valinu þar sem hún fékk vinnu í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar. Áreitið stoppaði ekki þar og hefur Ari reynt að grafa undan starfi hennar með því að hafa samband við kaupfélagsstjórann og segja ljótar sögur. Þegar ekki var tekið mark á þeim hefur áreitið beinst að kaupfélagsstjóranum sjálfum og öðru starfsfólki kaupfélagsins. Stofnaðar hafa verið Facebook-síður í nafni kaupfélagsins þar sem myndbönd af Björgu Amalíu og vinkonunni eru birt. Þá hefur Ari birt myndir af kaupfélagsstjóranum og segir hann styðja heimilisofbeldi en kaupfélagsstjórinn Viktoría Rán vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Þetta áreiti hefur verið formlega kært til lögreglu. Hefur kaupfélagsstjórinn brugðið á það ráð að loka Facebook-síðu kaupfélagsins. Hefur Ari einnig stofnað Facebook-síðu fyrir Kaupfélag Norðfjarðar í Árneshreppi.

Þá var meðlimur í hljómsveit Bjargar Amalíu fyrir því að nafni hans og mynd af honum var skeytt við nafnlausan dóm um barnaníðing sem fór síðan í dreifingu á netinu. Illmögulegt er að verjast slíkum árásum á mannorð fólks.

Fá úrræði lögreglu

Björg Amalía hefur ítrekað verið í sambandi við lögreglu út af áreiti Ara en lögreglan hefur lítið getað gert til þess að aðstoða hana. „Mér hefur verið tekið mjög fálega og lögreglan virðist ekki hafa nein úrræði til þess að stöðva áreiti sem þetta. Ég vona að með lagabreytingum verði hægt að gefa lögreglunni frekari tæki til þess að berjast gegn eltihrellum og hefndarklámi og þess vegna fannst mér mikilvægt að stíga fram. Þeir sem eru fórnarlömb slíks þurfa að segja sögu sína svo eitthvað verði gert,“ segir Björg Amalía.

„Þeir hringja og ég segi þeim að halda kjafti“

Ari hafnar öllum ásökunum

Ari Sigurðsson segir frásögn Bjargar Amalíu fráleita og gagnrýnir störf lögreglunnar harðlega. Hann segir að Björg beri ábyrgð á ofbeldinu og segist sjálfur vera fórnarlamb.

„Hún er búin að níðast á mér ansi lengi. Hún beitti mig heimilisofbeldi og það hefur rignt yfir mig hótunum um líkamsmeiðingar frá kunningjum hennar og vinum,“ segir Ari. Hann harmar viðbrögð lögreglu og telur þau óásættanleg. „Ég sendi öll gögnin á lögreglu en hún fór í sumarfrí og ekkert gerðist. Á meðan var mér hótað og hótað af hinum og þessum gaurum sem ég þekkti ekki neitt. Sífelldar símahótanir og smáskilaboð. Ég reyndi þá að semja við Björgu um að við myndum hvorugt kæra og þannig gæti ég kúplað mig út úr þessum vinskap og farið að vinna. Það gekk hins vegar ekki eftir,“ segir Ari.

Þetta er áreiti

Eins og áður segir er Ari mjög gagnrýninn á störf lögreglu. „Mín upplifun er sú að konur komast upp með að segja ansi mikið. Þær geta öskrað að verið sé að kyrkja sig og lögreglan handtekur manninn, án þess að spyrja hvað kom fyrir hann,“ segir Ari. Hann nefnir sem dæmi að hann hafi verið handtekinn eftir að til handalögmála kom milli þeirra í fyrsta sinn. Þá hafi hann einnig verið færður af vettvangi eftir hnífaárásina en bendir á að Björg Amalía hafi síðan farið upp á lögreglustöð og afsakað sig með þeim orðum að hún hafi farið með rangt mál.

Eins og fram kemur í viðtali við Björgu Amalíu hefur Ari birt myndir og myndbönd af samskiptum þeirra. Að hans mati er það hans eina vörn til þess að fólk trúi því hvað hann hafi gengið í gegnum. „Mér finnst skrítið að fólk haldi að ég, sem karlmaður sem lendi í þessu, eigi ekki að skipta mér af hlutunum. Sumir virðast telja að ég eigi að halda kjafti og gleyma þessu. Það er ekki jafnrétti. Lögreglan hefur sinnt henni miklu betur og tekur málstað hennar. Lögreglan er búin að hringja í mig, angra mig og ónáða mig. Þetta er áreiti,“ segir Ari sem getur ekki ímyndað sér hvaða ástæða sé fyrir því að lögreglan gangi svo hart fram.

Hafa engan rétt

„Þeir hafa engan rétt til þess að hringja í mig fyrir hönd Bjargar og spyrja mig hvað ég sé að gera á netinu. Þeir hringja og ég segi þeim að halda kjafti,“ segir Ari. Hann nefnir sem dæmi að lögreglukona hafi hringt í hann og hótað honum undir rós að hann yrði að breyta efni á netinu annars yrði hann settur í nálgunarbann. „Ég sagði við hana að hún réði ekki hvort að ég yrði settur í slíkt bann út af einhverju sem Björg Amalía segði. Það gengur ekki og þú veist það jafnvel og ég, þú hótar mér ekkert nálgunarbanni,“ segir Ari. Að hans sögn hafi lögreglan síðar hringt í hann og beðist afsökunar.

Ari telur sig ekki hafa gengið of langt með myndbandsbirtingum af Björgu Amalíu og aðstandendum hennar og að það komi ekki til greina að taka myndböndin niður til þess að fá frið. „Ég sé enga ástæðu til þess. Þetta eru myndbönd sem ég hef fullt leyfi til þess að birta. Ég hef yfirleitt lent í því að enginn trúir því að ég hafi lent í þessu ofbeldi. Þetta er að mínu mati myndband á móti orði,“ segir Ari.

Sér enga ástæðu til þess

Aðspurður um aðgerðir sínar gegn vinkonu Bjargar Amalíu sem flúin er norður í land segir Ari. „Hún er skemmdari manneskja en nokkur maður getur gert sér grein fyrir. Hún sendi mér myndband þar sem tæknilega kemur fram heimilisofbeldi. Hún hringdi síðar og bað mig um að taka það myndband niður en ég sé enga ástæðu til þess. Hún gerði grín að mér og heimilisofbeldi og ég ætla að halda þessu myndbandi á lofti sem karaktervitnisburði,“ segir Ari.

Hann segist hafa frétt fyrir tilviljun að vinkonan væri flutt norður og fengið vinnu. Hann hafi í framhaldinu haft samband við yfirmann hennar með þau gögn sem hann hafi undir höndum. „Hún stökk í einhverja vörn og lokaði Facebook-síðu fyrirtækisins. Ég er gapandi yfir því að hún hafi kosið að þagga málið niður með þessum hætti,“ segir Ari.

Hann segist ekki hafa hugmynd um hver braut rúðurnar á heimili Bjargar Amalíu. „Hún hefur ásakað mig um að drepa kettina sína og sagt að ég hafi nauðgað henni. Þannig er það ekki,“ segir Ari. Hann segir að baráttan hafi ekki reynst honum erfið en að undarlegt sé að upplifa viðbrögð þeirra sem koma að málinu. „Karlmönnum er ekki trúað,“ segir Ari að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga