fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Sveinbjörg snýr aftur til fyrri starfa í borgarstjórn

Henni bar ekki að skrá tengsl við aflandsfélög

Kristín Clausen
Fimmtudaginn 30. júní 2016 13:05

Henni bar ekki að skrá tengsl við aflandsfélög

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Innri endurskoðandi og regluvörður Reykjavíkurborgar hafa nú lokið úttekt sinni að beiðni forsætisnefndar borgarinnar.“ Á þessum orðum hefst yfirlýsing frá Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúa, þar sem kemur fram að henni hafi ekki borið að skrá tengsl við aflandsfélög.

Lögheimili í Lúxemborg

„Í úttekt innri endurskoðanda og regluvarðar er staðfest að mér hafi ekki borið að skrá aflandsfélög sem ég tengdist á árunum 2007-9 á skrá um fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa eða innherjaskrá, enda hafi þau verið afskráð á árinu 2009-10. Á árunum 2009-10 var ég með lögheimili og skattalegt heimilisfesti í Lúxemborg.“

Sveinbjörg segir ennfremur að í úttekt innri endurskoðanda og regluvarðar kemur fram að á árinu 2014 hafi hún í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti tilkynnt regluverði um þrjú nánar tiltekin einkahlutafélög sem fjárhagslega tengda aðila. Aftur á móti hafi henni jafnframt borið að tilkynna um tengsl sín við umrædd félög á skrá þeirri sem skrifstofa borgarstjórnar heldur um fjárhagslega hagsmuni.

Braut ekki sveitastjórnar- eða stjórnsýslulög

Að auki segir að í úttekt innri endurskoðanda og regluvarðar kemur fram að Reykjavíkurborg hafi ekki átt nein viðskipti við félög sem henni hafi borið að telja til fjárhagslega tengdra aðila.

„Niðurstaða þeirra er því að ég hafi ekki brotið sveitarstjórnar- eða stjórnsýslulög.“

Í svarbréfi skrifstofu borgarstjórnar til forsætisnefndar 16. júní síðastliðinn var því hafnað að veita upplýsingar um þá borgarfulltrúa sem hefðu breytt skráningu sinni á fjárhagslegum hagsmunum í kjölfar þess að forsætisnefnd óskaði eftir úttekt innri endurskoðanda og regluvarðar.

Sveinbjörg snýr aftur

Sveinbjörg segir að í þeirri úttekt sem nú liggur fyrir er bent á að tilefni geti verið til að skoða skráningu fjárhagslegra hagsmuna annarra borgarfulltrúa enda sýna gögn að breytingar hafa verið gerðar frá því að óskað var eftir úttektinni og þá hefur umboðsmaður borgarbúa með áliti sínu 3. júní síðstliðinn staðfest brot kjörinna fulltrúa á 2. gr. siðareglna borgarinnar.

„Í ljósi niðurstöðu úttektarinnar mun ég snúa aftur til fyrri starfa minna í borgarstjórn,“ segir Sveinbjörg að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí