fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

„Innanbúðarmaður hjá Illuga“ ráðinn yfir Borgarholtsskóla þvert á mat skólanefndar

Skólamaður segir sig úr nefndinni vegna meintrar spillingar

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 7. júní 2016 10:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Álit skólanefndar Borgarholtsskóla var að engu haft þegar nýr skólameistari Borgarholtsskóla var ráðinn um mánaðamótin. Sá sem varð fyrir valinu, Ársæll Guðmundsson, hefur verið verkefnaráðinn í Menntamálaráðuneytinu frá því hann lét af störfum sem skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði – þegar skólinn sameinaðist Tækniskólanum.

Sjá einnig: DV spyr um ráðningu

Ragnar Þór Pétursson, fulltrúi menntamálaráðherra í skólanefndinni, hefur sagt sig úr nefndinni og sagt að málið angi af spillingu. Nefndin hafi fengið fyrirmæli um að skoða umsækjendur ekki of vel. Allir nefndarmenn komust sjálfstætt að þeirri niðurstöðu að annar umsækjandi væri hæfastur.

DV greindi frá málinu í febrúar og spurði þá um ráðningarferlið í ljósi þess að starfsmaður ráðuneytisins var á meðal umsækjenda. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra fól Ólöfu Nordal innanríkisráðherra að annast ráðninguna en sá kvittur hefur í allan vetur verið á kreiki, á meðal starfsmanna skólans, að til stæði að ráða Ársæl.

Sjá einnig: Skipa utanaðkomandi valnefnd vegna ráðningar

Ragnar segir í pistli sínum að hann hafi heyrt úr ýmsum áttum að „staðan væri eyrnamerkt Ársæli, sem væri innanbúðarmaður hjá Illuga og lykilmaður í hvítbókarvinnu hans.“

„Ég fullyrði þess vegna að það sé nánast útilokað að Ársæll hafi verið valinn af faglegum forsendum,“ skrifar Ragnar. Hann fullyrðir að ráðuneytið hafi ekki viljað að nefndin tæki viðtöl við umsækjendur eða kynnti sér málið of vel.

Ráða átti í stöðuna 1. apríl síðastliðinn en ráðningin dróst í tvo mánuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump