fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Forsetinn svarar Sigmundi fullum hálsi: Skjalataska ríkisráðs var með í för

Ólafur Ragnar Grímsson svarar ásökunum forsætisráðherra

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. apríl 2016 19:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Nei,nei, það var enginn misskilningur,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í viðtali við Fréttastofu RÚV þar sem hann svaraði ásökunum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fráfarandi forsætisráðherra, um að fundinum þeirra á milli á Bessastöðu fyrir hádegi, hefði ekki verið rétt lýst.

Sjá einnig: Sigmundur segir forseta fara með rangt mál

Hann taldi að það væri ekki rétt að munnhöggvast við fráfarandi forsætisráðherra.

„En hann mætti hér í morgun með ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis og ritara ríkisráðs með sér, og sá hafði skjalatösku ríkisráðs með í för,“ sagði Ólafur Ragnar samt sem áður um fund þeirra tveggja.

Eins og kunnug er þá hafnaði Ólafur Ragnar beiðni Sigmundar Davíðs um þingrof. Hélt forsetinn sérstakan blaðamannafund þar sem þetta var tilkynnt, um hádegisbilið, og tilkynnti þar þjóðinni allri um ákvörðun sína.

„Atburðarrásin var nákvæmlega eins og ég lýsti henni áðan,“ sagði Ólafur Ragnar sem sagði að það hefði aldrei áður gerst að embættismenn hefðu komið með forsætisráðherra á fund með forsetanum, og hvað þá með skjalatösku ríkisráðs í för.

„Eins og hann gaf í skyn á bloggsíðu sinni áður en hann kom til fundar við mig, tvinnaði hann saman annarsvegar þingrof og svo viðræður við formann Sjálfstæðisflokksins, og það var alveg ljóst í okkar samræðum að megintilgangurinn, að fá slíkt plagg eða fyrirheit, að það yrði notað sem vopn í viðræðum við Sjálfstæðisflokkinn,“ sagði Ólafur Ragnar.

Ólafur Ragnar segist þá hafa greint forsætisráðherranum frá því að hann teldi það ekki við hæfi að nota forsetaembættið í slíkum aflraunum.

Í lokin var forsetinn spurður hvort hann hygðist bjóða sig aftur fram í ljósi tíðinda dagsins. Ólafur Ragnar sagði ekki við hæfi að blanda slíku inn í umræðuna eins og staðan væri núna, en sagði tíðindin sýna mikilvægi forsetaembættisins þegar kæmi að lýðræðinu, þjóðarheill og þingræði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump