fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Segir að Magni hafi reynt að neyða sig út í vændi: Kúgaði hana með hrelliklámi

Hrefna I. Jónsdóttir segist hafa lent í Magna – tók upp kynlíf þeirra í leyfisleysi og notaði það óspart gegn henni

Ritstjórn DV
Föstudaginn 1. apríl 2016 18:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar ég var fjórtán, fimmtán ára gömul, þá gerði hann við sjónvarpið mitt,“ segir Hrefna I. Jónsdóttir, sem hafði samband við DV eftir að við greindum frá máli Valbjörns Magna Björnssonar, eða Magna Linberg, sem hefur verið kærður til lögreglu fyrir að ofsækja fyrrverandi sambýliskonu sína.

Fanney Björk Ingólfsdóttir, 26 ára gömul kona, steig í kjölfarið fram og sagði Magna hafa beitt sig hrikalegu andlegu ofbeldi í um áratug.

Gerði við sjónvarpið

Hrefna segir í viðtali við DV að sögur þeirra séu keimlíkar, þó sé ákveðinn munur á; þar sem hún segir að Magni hafi kúgað sig til þess að stunda kynlíf með honum gegn því að kynlífsmyndband sem hann tók upp af henni í leyfisleysi færi ekki í birtingu.

„Hann bjó til skamms tíma í bænum og bar af sér góðan þokka,“ segir Hrefna sem er fædd árið 1987 þegar hún útskýrir hvernig hún kynntist Magna. Þá var hún búsett á Vestfjörðum en Magni starfrækti verkstæði fyrir rafmagnstæki. Hún fór ásamt fjölskyldu með sjónvarpið í viðgerð.

„Fyrst hafði hann samband við mig og sagði mér að hann væri búinn að gera við sjónvarpið .Hann bað mig um að koma og kíkja á það, en þá var klukkan að verða ellefu um kvöldið. Mér leist náttúrulega ekkert á það, og fór ekki að hitta hann,“ útskýrir hún.

Skömmu síðar fór hún að fá smáskilaboð úr leyninúmeri og svo virtist sem um ungan mann væri að ræða sem sýndi henni áhuga.

Dularfull smáskilaboð

„Hann sagðist hafa séð mig á Akureyri á einhverju djammi, en þá var ég orðin sextán ára gömul,“ segir Hrefna og bætir við að hún hafi orðið spennt fyrir honum, „enda alltaf gaman þegar einhver sýnir manni áhuga, hann sagði að ég væri sæt og svoleiðis,“ bætir hún við.

Öll samskipti voru þá í gegnum smáskilaboð. Hún segir að samskiptin hafi verið mikil á tímabili og sjálf hafi hún verið farin að gefa honum undir fótinn.

„Hann bað svo um mynd af mér, og ég benti honum þá á Myspace-síðuna mína,“ segir hún. Það leið þó ekki á löngu þar til samskiptin fóru að verða einkennilegri.

„Hann þrýsti svo mikið á mig að senda klúra mynd af mér,“ segir hún. Þá var Hrefna búin að treysta honum fyrir því að hún ætti í fjárhagsvandræðum annað slagið þrátt fyrir að vinna mikið. Hann lofaði henni þá pening fyrir myndina.
„Úr varð að ég fann mynd á einhverri klámmynd, mynd þar sem sást í klof konu en ekki í andlit hennar,“ segir hún. Örskömmu síðar var búið að leggja 25 þúsund krónur inn á reikninginn hennar.

„Þá sá ég auðvitað á kennitölunni að þetta var eldri maður og reyndist vera Magni,“ segir hún en þarna var hún sextán, sautján ára gömul, en hann var rétt um fimmtugt.

Þrjár konur hafa sakað Magna um ótrúlega flókið og umfangsmikið ofbeldi. Eitt málanna er á borði lögreglu.
Valbjörn Magni Björnsson Þrjár konur hafa sakað Magna um ótrúlega flókið og umfangsmikið ofbeldi. Eitt málanna er á borði lögreglu.

Tók upp kynlífið án leyfis

Hún segir að þau hafi engu að síður haldið áfram að tala saman. „Hann sagði réttu hlutina. Ég var ung og vitlaus og hann náði mér bara,“ útskýrir hún.

Það var þó ekki fyrr en hún flutti suður sem hún tók þá afdrifaríku ákvörðun að hitta Magna.

Hún útskýrir fyrir blaðamanni að hún hafi verið með mjög brotna sjálfsmynd á þessum tíma og því sóst í Magna.

„Þarna var hann orðinn klettur í lífi mínu, trúnaðarvinur og aðstoðaði mig stundum fjárhagslega, en ég hafði ekki auðvelt aðgengi að fjárhagsaðstoð á þeim tíma,“ útskýrir Hrefna og segir að svo hafi farið að hún hafi sofið tvívegis hjá honum.

„Það var með samþykki beggja aðila,“ segir hún við blaðamann. Hún ákvað þó í kjölfarið að slíta sambandinu við Magna, þar sem henni þótti aldursmunurinn óþægilegur og vildi ekki eiga í ástarsambandi við hann.

„Það er þá sem hann sendir skjáskot á mig þar sem við sjáumst sofa saman. Hann hafði falið myndavél í stofunni og tekið allt upp,“ segir hún. Hrefna bætir við að hann hafi hótað henni að senda myndskeiðið á fjölskyldu hennar og jafnvel gera opinbert ef hún svæfi ekki aftur hjá sér.

„Og þannig varð ég fangi hans, sautján, átján ára gömul,“ segir Hrefna. „Hann hótaði að eyðileggja líf mitt með þessu myndbandi.“

Reyndi að þvinga hana út í vændi

Hún segist hafa haldið áfram að sofa hjá honum af ótta við að hann myndi gera hrelliklámið opinbert auk þess sem hún átti erfitt með að standa á eigin fótum fjárhagslega á þeim tíma.

„Svo kom að því að því að hann gerði mér viðskiptatilboð,“ segir hún alvarleg í bragði.

„Ég hafði í raun ekkert annað val en að hlusta á hann,“ segir hún tregafull og bætir við: „Hann sagði þá við mig að hann væri búinn að búa til aðgang á einkamál.is og auglýst mig til sölu,“ segir hún.

„Hann setti mynd af mér þarna inn og sagði að nokkrir karlmenn hefðu haft samband við sig og lýst yfir áhuga á að kaupa mig,“ segir hún.

„Hann sagði mér að ég þyrfti þá helst að stunda munngælur, en svo gæti farið að tveir eða fjórir karlmenn myndu vilja sofa hjá mér í einu,“ segir Hrefna þegar hún lýsir skelfilegri reynslu sinni.

„Ég sagði nei við hann fyrst,“ svarar hún aðspurð hvernig hún hefði brugðist við. Þarna var hún nítján ára gömul og mjög brotin andlega að eigin sögn.

„Þá hótaði hann mér og sagði mér að hann kæmist í vandræði vegna þess að hann hefði lofað þessum mönnum þessa þjónustu. Svo sagði hann mér að hann gæti auðveldlega snúist gegn mér,“ lýsir Hrefna.

Hrefna segir að það hafi hvarflað að henni að taka tilboðinu til þess að þóknast Magna, „en svo var ég þó það sterk að ég gat sagt mér að ég væri með sterkari sjálfsvirðingu en þetta,“ segir hún svo.

Hún segir að Magni hafi þrýst verulega á sig að byrja að selja sig, meðal annars hafi hann verið reiður henni þar sem hann gæti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart þeim mönnum sem hann hafði lofað að gætu keypt af henni vændi.

Hrefna segist hafa verið orðin mjög hrædd og verið farin að gista hjá ættingja sínum til þess að fela sig fyrir Magna.

Blaðamaður hjálpaði

„Svo datt mér allt í einu í hug að setja mig í samband við Jóhannes í Kompási,“ segir Hrefna en þetta var árið 2005 eða 2006. DV hafði samband við Jóhannes Kr. Kristjánsson, rannsóknarblaðmann sem staðfestir aðkomu sína að málinu.
Hrefna segir að hann hafi beint henni strax til Kvennaathvarfsins og lögreglu auk þess sem hann hafi verið henni stoð og stytta í málinu.

„Ég er honum óendanlega þakklát,“ segir hún.

„Svo sagði hann mér að segja fjölskyldunni frá þessu,“ segir Hrefna, en hún er búin að segja nánustu fjölskyldumeðlimum frá myndbandinu og ægivaldinu sem Magni virðist hafa haft yfir henni.

„Ég fór svo til lögreglunnar og þar sem skýrsla var tekin af mér,“ segir hún. Hrefna segir að lögreglan hafi aldrei verið vongóð um að málið myndi leiða til ákæru, „og lögreglumaðurinn sem sinnti málinu var mjög almennilegur og hjálplegur. En það var alveg ljóst að málið þætti ekki líklegt til þess að enda sem dómsmál,“ útskýrir hún og úr varð að hún kærði aldrei Magna.

Lögreglumaðurinn mun þó að sögn Hrefnu hafa sett sig í samband við Magna og gefið honum tiltal, sem leiddi til þess að hann hætti að setja sig í samband við hana.

Þungu fargi var af Hrefnu létt, hún var laus við Magna úr sínu lífi. En þó ekki alveg.

Jóhannes kom Hrefnu til aðstoðar árið 2005. Það var áður en í ljós kom að Magni hafði hugsanlega beitt fleiri konur ofbeldi
Jóhannes Kr. Kristjánsson Jóhannes kom Hrefnu til aðstoðar árið 2005. Það var áður en í ljós kom að Magni hafði hugsanlega beitt fleiri konur ofbeldi

Mynd: © Róbert Reynisson

Sagði öllum frá

„Ég byrjaði með strák nokkru síðar. Nokkrum mánuðum áður en við giftum okkur, eða um fjórum árum síðar, setti Magni sig í samband við hann,“ segir Hrefna en þá á Magni að hafa sagt við unnustann að hann vissi ekki hversu mikil „hóra“ Hrefna væri.

„Ég var þá búinn að segja honum frá þessu öllu saman, og að Magni væri með þetta myndband einhverstaðar,“ segir Hrefna. Svo virðist sem Magni hafi ætlað að eyðileggja samband þeirra að hennar sögn.

Samskiptunum lauk snögglega og reyndi hann ekki setja sig aftur í samband við unnustann. Hrefna segir það þó til marks um að Magni hafi verið fylgjast með henni, því svo virðist sem hann hafi vitað að hún ætlaði að gifta sig.

Spurð hvort hún hafi áhyggjur af því að hrelliklámið fari á kreik, svarar hún neitandi. „Ég er búin að segja öllum frá þessu og vinna mikið í mér,“ útskýrir hún. Hrefna segir það ekki í boði að hann hafi valdið í samskiptum þeirra.
Frásögn Hrefnu af Magna er ekki ósvipuð sögu Fanneyjar Óskar Ingólfsdóttur, sem DV ræddi við í gær. Svo virðist sem Magni hafi verið að áreita þær báðar á þessu tímabili, en að auki hefur hann verið kærður fyrir að ofsækja fyrrverandi sambýliskonu sína á Akureyri, þar sem hann er sjálfur búsettur.

Hrefna segist stíga fram í viðtali við DV af einföldum ástæðum: „Ef ég hefði verið með brotnari sjálfsmynd, þá hefði ég getað endað í vændi út af þessum manni. Og þá fer maður að hugsa; ætli honum hafi tekist ætlunarverk sitt gagnvart annarri stelpu?“

Leitað til lögreglu en aldrei rannsakað

Samkvæmt frásögn Fanneyjar og Hrefnu hafa þær báðar leitað til lögreglu vegna Magna án þess þó að málin kæmust í eðlilegan farveg.

Mál hans er til rannsóknar vegna meintra ofsókna sem hafa beinst að fyrrverandi sambýliskonu sinni á Akureyri.
DV hafði sambandi við Magna í gær sem hafnaði nánast alfarið sögum Fanneyjar og fyrrverandi sambýliskonu hans. DV reyndi ítrekað að ná sambandi við hann í dag án árangurs.

„Málið er bara hjá mínum lögfræðingi,“ sagði hann í viðtalinu í gær en vildi ekki tjá sig efnislega um málið.

Ef fleiri hafa sömu sögu að segja er hægt að hafa samband við blaðamann í gegnum vefpóstinn valur@dv.is. Fullum trúnaði er heitið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni

Prentvilla kemur í veg fyrir útburð á síbrotakonu í Bríetartúni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum