Hættan á ISIS komi höndum yfir kjarnavopn er raunveruleg, segir Bandaríkjaforseti


Barack Obama Bandaríkjaforseti segir að ógnin sem stafar af hryðjuverkamönnum sem vilja koma höndum yfir kjarnavopn sé raunveruleg. Yrði slíkt að veruleika myndi það „breyta heiminum“.
Kjarnorkuráðstefna, sem leiðtogar margra af stærstu ríkjum heims hafa setið, hefur staðið í Washington og í kvöld tók Barack Obama til máls og tjáði sig um ógnina sem stafar af hryðjuverkasamtökum á borð við þau sem kenna sig við Íslamskt ríki, ISIS.
„Það er engin spurning að ef þessir brjálæðingar kæmu höndum yfir kjarnorkusprengju þá myndu þeir nota hana til að drepa eins marga og þeir mögulega gætu,“ sagði Obama og bætti við að áhrifaríkasta leiðin til að verjast kjarnorkuhryðjuverkum væri að tryggja geymslu kjarnavopna svo þau falli ekki í rangar hendur.
Obama sagði að þjóðir heimsins hefðu ekki efni á að vanmeta þessa ógn og halda áfram að draga úr framleiðslu kjarnavopna. Sagði hann að ógnin af kjarnorkuhryðjuverkum væri „ein sú mesta sem heimurinn stendur frammi fyrir.“
Á fundinum lýstu leiðtogar margra ríkja yfir áhyggjum sínum af þróun mála í Norður-Kóreu og sömuleiðis áhyggjum af því að Rússar skyldu ekki senda fulltrúa á ráðstefnuna.
Vladimir Pútín Rússlandsforseti ákvað að sitja ekki ráðstefnuna og þá mætti Nawaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, ekki. Báðar þjóðir búa yfir kjarnavopnum. Þess má geta að Sharif afboðaði sig í kjölfar hryðjuverkanna í Lahore í vikunni.