Sló inn á Google: „Hvernig á að losa sig við einhvern sem er pirrandi“


Unglingspiltur frá Skotlandi hefur verið dæmdur í 9 ára fangelsi fyrir manndráp og vopnaburð en hann varð skólafélaga sínum að bana með hnífstungu. Ástæðan verknaðarins er sögð hafa verið „kjánalegt“ rifrildi á milli piltanna tveggja.
Piltarnir voru nemendur við Cults Academy, sem staðsettur er í Aberdeen og er talinn vera með betri skólum í Skotlandi. Til átaka kom á milli hins látna, Bailey Gwynne og banamannsins á skólalóðinni, en nafn banamannsins hefur ekki verið gert opinbert. Mun Bailey hafa neitað að gefa hinum piltinum kexköku og hæðst að honum með því að segja við hann: „Þú vilt nú ekki verða mikið feitari!“ Brást pilturinn þá ókvæða við og eftir hávært rifrildi dró hann hníf upp úr vasa sínum og stakk Bailey í hjartað.
Pilturinn sem varð Bailey að bana er sagður hafa keypt banavopnið í Amazon netversluninni. Þegar lögregla kannaði fartölvu hans mátti sjá að hann hafi skrifað í Google leitarvélina setningar á borð við: „Munurinn á milli manndráps og morðs“- „Hvernig á að losa sig við einhvern sem er pirrandi“ og „ólöglegir hnífar.“
Fyrir dómi var honum lýst sem „venjulegum en barnalegum.“ Lögmaður hans sagði umbjóðanda sinn sýna djúpa iðrun fyrir að hafa banað skólafélaga sínum og bætti við að pilturinn hefði tekið hnífinn með í skólann til að „virðast svalur.“ Sagði hann að í kjölfar atburðarins hefði pilturinn þjáðst af áfallastreituröskun og þurft að vera undir stífu eftirliti sérfræðinga.
Dómari lét aftur á móti þau ummæli falla að ekkert gæti linað þjáningu foreldra fórnarlambsins, sem voru viðstödddómsuppkvaðninguna. Litið var til þess að pilturinn hafði ekki áður gert brotlegur við lög en engu að síður var ekki hægt að líta fram hjá því að ef hann hefði ekki tekið með sér hníf í skólann þennan dag þá hefði fórnarlamb hans ekki glatað lífinu. Var pilturinn því dæmdur til 8 ára fangelsisvistar fyrir manndráp að viðbættu einu ári fyrir ólöglegan vopnaburð.