fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Salah Abdeslam snerist hugur: Vill fá framsal til Frakklands

Segist ekki hafa vitað af hryðjuverkunum í Brussel – Hættur allri samvinnu með belgísku lögreglunni

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 24. mars 2016 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Salah Abdeslam, sem grunaður er um að hafa átt stóran þátt í hryðjuverkunum í París, segist nú vilja vera framseldur til Frakklands. Hann segist ekki ætla að vinna með lögreglunni að rannsókn málsins fyrr en hann verður framseldur.

Frá þessu er greint á CNN en þar er haft eftir lögmanni Abdeslam. Abdeslam var handtekinn síðastliðinn föstudag í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar í Belgíu. Daginn eftir var hann svo ákærður fyrir aðild að hryðjuverkunum í París. Abdeslam var sagður samvinnufús en hann setti þá kröfu að verða ekki framseldur til Frakklands.

Nú hefur honum snúist hugur og segist hann ekki ætla að hjálpa yfirvöldum með rannsókn sína nema að hann verði framseldur til Frakklands.

Abdeslam segist ekki hafa vitað af árásunum í Brussel, þar sem yfir 30 manns létust og yfir 200 særðust. Rannsakendur telja hins vegar afar líklegt að Abdeslam hafi átt að taka þátt í árásunum, sem gerðar voru á alþjóðaflugvellinum í Brussel og Maelbeek lestarstöðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump