Þær flugu afsökunarbeiðnirnar um helgina. Bubbi bað Þórunni Antoníu afsökunar á að hafa lagt hana í einelti. Kári Stefánsson bað Sigmund Davíð afsökunar á að hafa kallað hann tveggja ára offitusjúkling. Þórunn var ekki sátt og bíður eftir að Bubbi komi með alvöru afsökunarbeiðni? Kári Stefánsson skrifaði tveimur sólarhringum eftir sína afsökunarbeiðni: „Ég er þeirrar náttúru að ef ég sé tveggja ára feitan gutta í dulargervi fullorðins manns, hvort sem hann er hæstvirtur forsætisráðherra eða Kári Stefánsson þá kem ég til með að segja frá því.“