

Ríkisendurskoðun telur ósætti um starfsemi sjúkrahótels við Ármúla í Reykjavík ótækt og hvetur velferðarráðuneytið til að höggva á þá hnúta sem komnir eru á málið.
Sjúkratryggingar Íslands og Landspítalinn hafa um nokkurra ára skeið deilt um starfsemi sjúkrahótels við Ármúla í Reykjavík og úr varð að Ríkisendurskoðun vann skýrslu um hótelið um hótelið þar sem kemur fram að Landspítalinn hafi allt frá árinu 2011 gert margvíslegar athugasemdir við aðstöðu, aðbúnað og efndir rekstraraðila á samningunum.
Sjúkratryggingar Íslands hafi talið þær tilefnislausar og stofnanirnar deilt opinberlega vegna þessa.
Ríkisendurskoðun telur þetta ótækt og hvetur velferðarráðuneytið til að höggva á þá hnúta sem komnir eru á málið.
Þá hvetur stofnunin ráðuneytið til að marka skýra stefnu um eðli og rekstur sjúkrahótela/sjúklingahótela og kanna hvort rétt sé að fella starfsemi þeirra undir lög um heilbrigðisþjónustu.
Fram kemur að deila Sjúkratrygginga og Landspítala snúist m.a. um hjúkrun og aðhlynningu þeirra sem dvelja á sjúkrahótelinu. Sjúkratryggingar bendi á að sjúklingar eigi að vera sjálfbjarga þegar þeir innritast á hótelið.
Landspítalinn og rekstraraðilar sjúkrahótelsins telji á hinn bóginn að sumir sjúklingar sem þangað komi þurfi mikla aðstoð og sérhæfða meðferð. Ríkisendurskoðun vekur athygli á að um þetta sé líka ósamræmi milli samninga Sjúkratrygginga við annars vegar rekstraraðila og hins vegar Landspítalann. Ríkisendurskoðun beinir því til Sjúkratrygginga að eyða þessu ósamræmi.
Fram kemur í skýrslunni að raunveruleg þörf sjúklinga fyrir hjúkrun og aðhlynningu (hjúkrunarþyngd) hafi aldrei verið metin. Ríkisendurskoðun telur mikilvægt að úr þessu verði bætt svo að ekki þurfi að deila um ástand og þjónustuþörf sjúklinganna.
Jafnframt beinir stofnunin því til velferðarráðuneytisins að það tryggi að upplýsingar um starfsemi sjúkrahótela, m.a. hjúkrunarþyngd og fjölda gistinátta, séu skráðar með samræmdum hætti. Þannig verði unnt að meta þjónustu þeirra og hagkvæmni rekstrarins.