fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Ómar Ragnarsson rifjar upp kraftaverk Stefáns Karls: „Ég gapi enn í dag við tilhugsunina um það sem Stefán gerði“

Enginn Stefáni fremri til að ganga á hólm við þá áskorun sem nú blasir við

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 22. júní 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Eftir að hafa séð Stefán Karl gera þetta, ganga óhræddur, æðrulaus og hugrakkur til leiks og vinna kraftaverk, veit ég engan honum fremri til að ganga á hólm við þá áskorun, sem nú blasir við honum, og standa uppi sem sannur meistari, hvernig sem fer.“

Þetta segir fjölmiðlamaðurinn og sjónvarpsmaðurinn Ómar Ragnarsson í fallegum pistli á bloggsíðu sinni um vin sinn og einn ástsælasta leikara þjóðarinnar, Stefán Karl Stefánsson sem nú glímir við alvarleg veikindi.

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, eiginkona Stefáns, sagði frá því á Facebook-síðu sinni í gær að sjúkdómur Stefáns væri langt genginn. Pistilinn skrifaði Steinunn eftir að Stefán Karl bað hana um að segja frá stöðu mála án þess að draga nokkuð undan.

Sjá einnig:
Steinunn Ólína: „Dauðinn er nauðaómerkilegur – lífið er hins vegar ekkert minna en stórkostlegt!“

„Af þessu tilefni verð ég að segja hér sanna sögu af sannkölluðu kraftaverki, sem Stefán Karl vann í ferð með Stjörnuliðinu á 1000 stráka peyjamót í knattspyrnu í Vestmannaeyjum hér um árið.“

Hreinskilni, æðruleysi, uppörvun og kjarkur

Ómar og Stefán Karl hafa þekkst lengi og segir Ómar að nokkur ógleymanleg atvik og tilviljanir hafi gert Stefán honum næsta nákominn. „Fyrst sem stórkostlegur leikari og frændi Magnúsar Ólafssonar vinar míns úr Sumargleðinni, síðan sem fágætur afreksmaður í Stjörnuliði mínu, og loks sem afabróðir langafabarns míns,“ segir Ómar og heldur áfram:

„Nú stíga þau fram, hann og Steinunn Ólína á einstakan hátt og gefa okkur það sem okkur er öllum dýrmætast, hreinskilni, æðruleysi, uppörvun, kjark og kærleikans visku. Af þessu tilefni verð ég að segja hér sanna sögu af sannkölluðu kraftaverki, sem Stefán Karl vann í ferð með Stjörnuliðinu á 1000 stráka peyjamót í knattspyrnu í Vestmannaeyjum hér um árið.“

Átti sér enga hliðstæðu

Ómar rifjar upp skemmtilega sögu af Stefáni en um var að ræða leik Stjörnuliðsins sem lék skemmtiknattleik í setningarathöfninni í Vestmannaeyjum. Í liðinu voru margir þjóðþekktir einstaklingar, svo sem Magnús Scheving sem tók eftirminnileg innköst með heljarstökki, Árni Johnsen var í markinu með lundaháf og svo var Stefán Karl í liðinu.
„En eitt atriði reis upp úr þessu öllu með atviki, sem átti sér enga hliðstæðu í um 30 ára sögu Stjörnuliðsins, og var þó af nógu að taka,“ segir Ómar af sinni alkunnu frásagnargáfu.

„Hjalti Ursus Árnason var þarna með kraftakeppni þar sem aðeins sterkustu menn eða þrautþjálfaðir aflraunamenn voru gjaldgengir. Hjalti skoraði á viðstadda kraftajötna úr Eyjum eða annars staðar frá að taka þátt í keppninni og fór fljótlega þannig, að mönnum voru þessar aflraunir algerlega ofviða og atriðið hikstaði.“

„Eftir að hafa séð Stefán Karl gera þetta, ganga óhræddur, æðrulaus og hugrakkur til leiks og vinna kraftaverk, veit ég engan honum fremri til að ganga á hólm við þá áskorun, sem nú blasir við.“

Þá var komið að Stefáni Karli

Ómar segir að Hjalti hafi þá beint orðum sínum að liðsmönnum Stjörnuliðsins og segir Ómar að liðsmenn hafi fölnað þegar hann manaði þá til að senda þátttakanda úr liðinu – augljóst hafi verið að enginn í liðinu ætti minnstu möguleika á öðru en að verða fyrir niðurlægingu. Raunin varð þó önnur.

„Datt okkur helst í hug að einhver okkar gæti fíflast nógu mikið til að leiða athyglina frá niðurlægingunni, og varð úr að Stefán Karl, sem þá var grannur sem rengla, gæti helst notað þennan renglulega vöxt sinn til að vekja hlátur,“ segir Ómar sem segist enn gapa við tilhugsunina um það sem Stefán gerði.

Gerði atriðið að sínu

„Það vantaði ekki að hann gerði úr þessu drepfyndið atriði, heldur leysti hann aflraunirnar af hendi þannig að í lokin sneri þetta kraftaverk hans í bókstaflegri merkingu atriðinu alveg við, hann var kraftamaðurinn mesti og gerði atriðið að sínu atriði þegar aðrir glúpnuðu,“ segir Ómar sem komst ekki hjá öðru en að velta fyrir sér þessu afreki Stefáns Karls.

„Eina skýringin sem ég kann á þessu ótrúlega afreki er sú, að grannir vöðvar Stefáns Karls séu annars eðlis en á venjulegum mönnum. Kemur í hug hnefaleikarinn Jimmi Wilder, sem var laufléttur væskill en rotaði marga tvöfalt þyngri menn. Við rannsókn á vöðvum Wilders kom í í ljós að trefjarnar í vöðvum og sinum hans voru talsvert frábrugðnar því sem er að jafnaði í mönnum,“ segir Ómar sem endar færsluna á fallegum orðum:

„Eftir að hafa séð Stefán Karl gera þetta, ganga óhræddur, æðrulaus og hugrakkur til leiks og vinna kraftaverk, veit ég engan honum fremri til að ganga á hólm við þá áskorun, sem nú blasir við honum, og standa uppi sem sannur meistari, hvernig sem fer. Sendi honum og hans fólki innilegar baráttukveðjur og þakkir fyrir það sem þau gefa okkur öllum með frammistöðu sinni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“