fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026

Vekur dóttur sína á hverjum degi með því að sleikja hana eins og hvolpur

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 5. ágúst 2020 13:38

Marcia og Alena.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

sMothered eru þættir á TLC sem fjalla um mæðgur sem eiga það sameiginlegt að vera ótrúlega nánar. Í fyrsta þættinum var fjallað um mæðgur sem fara saman í sturtu á hverjum degi.

Sjá einnig: Mæðgur fara saman í sturtu á hverjum degi

Í nýjustu þáttaröðinni fáum við að kynnast mæðgunum Marciu og Alenu. Þær eru mjög nánar og segir Marcia að Alena sé besta vinkona sín. Hún vekur dóttur sína á hverjum degi með því að sleikja hana eins og hvolpur myndi gera. Alena er 21 árs.

„Alena var alltaf að biðja mig um hvolp og ég gat ekki gefið henni hvolp, þannig ég breytti mér bara í hundinn. Alena bragðast nokkuð vel, svo sæt, ég vil bara borða hana,“ segir Marcia í þættinum.

Alena segist hafa gaman af þessu. „Ég elska það þegar mamma sleikir mig. Mér finnst við nánari því við erum að gera eitthvað fyndið og skrýtið. Við gerum þetta á hverjum degi,“ segir hún.

Marcia, sem er 68 ára, ættleiddi Alenu þegar hún var smábarn.

Mæðgurnar segjast meðvitaðar um að öðrum þykir samband þeirra furðulegt en þeim er alveg sama.

„Sumir eru ekki sammála eða spá hvað sé að henni. Ég elska að hún sé að alast upp og getur gert alls konar kjánalega hluti. Þetta verður flóknara með því sem hún eldist, en við höfum samt gaman,“ segir Marcia.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Íbúar innilokaðir á heimilum sínum vegna massatúrisma -„Við höfum náð fjöldatakmörkunum“

Íbúar innilokaðir á heimilum sínum vegna massatúrisma -„Við höfum náð fjöldatakmörkunum“
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Mannabein fundust á ruslahaug árið 1993 – Nú hefur lögregla loks borið kennsl á drenginn

Mannabein fundust á ruslahaug árið 1993 – Nú hefur lögregla loks borið kennsl á drenginn
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Innbrotsþjófur með hníf ógnaði fjölskyldunni og hafði mikil verðmæti á brott

Innbrotsþjófur með hníf ógnaði fjölskyldunni og hafði mikil verðmæti á brott
EyjanFastir pennar
Fyrir 14 klukkutímum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Húsaleigulögin eru torf

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Húsaleigulögin eru torf
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Messi ræðir leikmennina sem taka við keflinu – „Hann minnir mig á sjálfan mig þegar ég var ungur“

Messi ræðir leikmennina sem taka við keflinu – „Hann minnir mig á sjálfan mig þegar ég var ungur“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Garðbæingar frussuðu úr hlátri þegar Hjörvar Hafliða nefndi þennan möguleika

Garðbæingar frussuðu úr hlátri þegar Hjörvar Hafliða nefndi þennan möguleika
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stuðningsmenn Arsenal telja sig vita af hverju Gyokeres hafi fundið taktinn

Stuðningsmenn Arsenal telja sig vita af hverju Gyokeres hafi fundið taktinn