fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025

Drake er í suddalegu formi – ber að ofan á Barbados

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 24. júlí 2020 22:30

Drake

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngvarinn og rappkrúttið Drake hefur undanfarið verið að vinna að næstu plötu sinni en þessi fjórfaldi Grammy-verðlaunahafi tók sér góða pásu til að njóta lífsins á Barbados þar sem hann buslar og ærslast með vinum sínum.

Flottur: Rapparinn er í suddalegu formi.

Drake hefur augljóslega látið að sér kveða í ræktinni og státar af grjóthörðum líkama sem honum leiðist ekkert að sýna og það er alveg ljóst að hann hefur nýtt Covid-einangrunina vel í líkamsrækt. Hann sprangar um ber að ofan og sýnir meitlaða vöðvana ásamt vænu safni húðflúra sem hann hefur sankað að sér í gegnum tíðina. Svo enginn missi af nýja og flotta forminu deildi hann nýverið mynd af magavöðvunum með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum undir fyrirsögninni „Sunny day in Saint James,“ þar sem það fer ekki á milli mála að hann hefur ekki bætt á sig einu einasta grammi í sóttkví.

Drake kann að njóta lífsins.

Barbados eru náttúrulega heimaland fyrrverandi kærustu hans, söngdívunnar Rihönnu, og þegar hann birti mynd af sér með bróður hennar Rorrey urðu aðdáendur hans að vonum gríðarlega forvitnir. Það er hins vegar ekkert sem bendir til þess að þau séu að taka saman aftur og Drake virðist hæstánægður með fríið sitt umvafinn vinum, sandi og sól.

Með bróður Rihönnu: Rorrey er lengst til vinstri.

 

Bátabusl: Drake fór með vinunum í bátsferð við Nikki beach.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Sveindís Jane: „Maður var eiginlega orðlaus yfir þessu“

Sveindís Jane: „Maður var eiginlega orðlaus yfir þessu“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum
Kyle Walker í Burnley
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Orrustan um Ísland stendur yfir

Sigmundur Ernir skrifar: Orrustan um Ísland stendur yfir
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Einstök fjölskyldustemning í kringum íslenska liðið – „Ekki bara nánasta fjölskylda“

Einstök fjölskyldustemning í kringum íslenska liðið – „Ekki bara nánasta fjölskylda“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ákærður fyrir fimm nauðganir en giftist unnustu sinni degi eftir fréttirnar

Ákærður fyrir fimm nauðganir en giftist unnustu sinni degi eftir fréttirnar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Segir að United hafi gert ein stærstu mistök í sögu fótboltans í fyrra

Segir að United hafi gert ein stærstu mistök í sögu fótboltans í fyrra
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Borga mögulega 50 milljónir fyrir leikmann sem Arsenal vildi ekki sjá

Borga mögulega 50 milljónir fyrir leikmann sem Arsenal vildi ekki sjá
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum
Julian McMahon látinn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.