Modern Family leikkonan Sofia Vergara er ókrýnd drottning sjónvarpsbransanum sem hæst launaða sjónvarpsleikkona heims en hún hefur heldur betur slegið í gegn sem hin glaðlynda Gloria í þessum vinsælu gamanþáttum. Auk leiklistarinnar dútlar Sofia sér við ýmis önnur verkefni og hefur hannað tískulínu fyrir Walmart og húsgagnalínu í samvinnu við Rooms To Go.
En okkar besta kona er ekki aðeins lunkin í viðskiptum heldur einnig heppin í ástum. Hún er gift leikaranum Joe Manganiello sem mörgum þykir hafa unnið í genalottóinu og í fyrra léku þau saman í fyrsta sinn í kvikmyndinni Bottom of the 9th. Sofia og Joe búa saman í glæsilegu húsi í Beverly Hills en nýverið bættu þau heldur betur við eignalistann þegar þau fjárfestu í 1.500 fermetra villu í afgirta hverfinu Beverly Park. Glæsihýsið sem er með 10 baðherbergjum, sex svefnherbergjum, sundlaug og huggulegum bíósal kostaði litlar 26 milljónir dala eða 3,6 milljarða íslenskra króna.
Og nágrannarnir eru ekki neitt slor. Meðal nágranna Sofiu og Joe má nefna Denzel Washington, Sylvester Stallone, Eddie Murphy, Kimora Lee Simmons, Mark Wahlberg og Rod Stewart.