Michael Franzese er fyrrverandi mafíuforingi. Árið 1995 sneri hann lífi sínu við og hefur skrifað bækur og haldið ótal fyrirlestra um mafíulífsstílinn síðan þá.
Hann spilar leikinn „ég hef aldrei“ í myndbandi fyrir BuzzFeed.
Leikurinn gengur út á að hann á að svara nokkrum staðhæfingum með annað hvort „ég hef“ eða „ég hef aldrei.“
Fyrsta staðhæfingin sem hann á að svara er: „Ég hef aldrei sett hesthaus í rúm einhvers.“
„Ég hef aldrei […] En ég get alveg séð fyrir mér fyrrum samstarfsfélaga mína gera það. Ég vildi óska þess að mér hafi dottið það í hug,“ segir hann.
Michael afhjúpar ýmislegt eins og það hefur verið fé sett til höfuðs hans. Hann segir einnig frá því að það hafi verið mjög auðvelt að múta stjórnmálamönnum.
Sjáðu myndbandið hér að neðan.