fbpx
Mánudagur 03.nóvember 2025

Lesið í tarot Viðars: Tækifæri felur í sér góð laun og öryggi

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 16. febrúar 2020 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið mæðir á Viðari Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Eflingar, í skugga yfirgripsmikilla verkfallsaðgerða í Reykjavíkurborg. DV ákvað því að leggja tarot fyrir Viðar og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Lesendur geta síðan dregið sín eigin tarotspil á vef DV.

Leitar ráða

Fyrsta spil sem kemur upp er Æðsti prestur. Viðar er í vanda staddur og veit ekki alveg hvernig hann á að beita sér í þessum aðgerðum. Hann leitar því hjálpar hjá fagmanni. Kennari, lögfræðingur, skyldmenni eða vinur mun leiðbeina honum næstu daga og er honum ráðlagt að taka mark á ráðum viðkomandi. Viðar þarf að hlusta gaumgæfilega á ráðin en einnig huga að sinni eigin framtíð. Hann þarf að koma sér í réttan gír, tileinka sér annað hugarfar og halda áfram veginn. Hvort hann er á réttum stað þarf hann að gera upp við sig, en honum eru allir vegir færir ef hann vill feta nýja slóða.

Stökkbreytingar

Næst er það 8 stafir. Spilið táknar jafnvægi, félagslegt öryggi og veraldleg gæði sem Viðar getur notið. Viðar þarf að treysta á sjálfan sig og ekki gleyma innsæinu, sem segir honum að í framtíðinni sé honum ætlað stærra hlutverk en það sem hann sinnir í dag. Varðandi núverandi verkfallsaðgerðir þá virðist enginn endir í sjónmáli en málið tekur stökkbreytingum á stuttum tíma og allt leysist. Hlutirnir verða eins og Viðar vill hafa þá og allar óskir hans verða uppfylltar.

Góð laun og öryggi

Loks er það 9 mynt. Viðar er þannig manneskja að hann kýs að vera einn endrum og eins. Eiga stundir með sjálfum sér. Hann er alls ekki þjakaður af einmanaleika og kann vel að meta gæðastundir með sjálfum sér þegar þessari holskeflu verkfalla er lokið. Hann hefur lagt mikið á sig til að komast á þann stað sem hann er á í dag. Nú þarf hann að njóta og ekki eyða tíma í óþarfa áhyggjur. Hugsanlega breytir hann um starfsvettvang í nánustu framtíð, en það tækifæri felur í sér góð laun og öryggi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Hobbitinn ástsæli er kominn út í nýrri þýðingu – Lestu fyrsta kaflann hér

Hobbitinn ástsæli er kominn út í nýrri þýðingu – Lestu fyrsta kaflann hér
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Segir vont aðgengi að Keflavíkurflugvelli vegna bílastæðagjalda – Að leggja bílnum geti jafnvel kostað meira en flugfargjöld

Segir vont aðgengi að Keflavíkurflugvelli vegna bílastæðagjalda – Að leggja bílnum geti jafnvel kostað meira en flugfargjöld
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hlédís gagnrýnir gellupólitík – „Staðreyndin er sú að konur skipa flest æðstu embætti í dag“

Hlédís gagnrýnir gellupólitík – „Staðreyndin er sú að konur skipa flest æðstu embætti í dag“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Óhugnanlegt kynferðisbrotamál ungmenna á Suðurnesjum – Dreifðu myndbandi af nauðgun gegn ólögráða stúlku á Snapchat

Óhugnanlegt kynferðisbrotamál ungmenna á Suðurnesjum – Dreifðu myndbandi af nauðgun gegn ólögráða stúlku á Snapchat
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Er allt í klessu hjá Tottenham? – Sjáðu þegar tveir leikmenn liðsins neituðu að taka í hönd Thomas Frank

Er allt í klessu hjá Tottenham? – Sjáðu þegar tveir leikmenn liðsins neituðu að taka í hönd Thomas Frank
Eyjan
Fyrir 18 klukkutímum

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Foreldrar fá að sjá nöfn og myndir af dæmdum níðingum

Foreldrar fá að sjá nöfn og myndir af dæmdum níðingum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.