fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024

Sjö smáforrit sem lífga upp á Instagrammið þitt

Öskubuska
Föstudaginn 15. mars 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég ætla að deila með ykkur nokkrum forritum til þess að lífga uppá instagramið, bæði fyrir instagram feedið og instastory. Fólk eyðir mismiklum tíma í myndvinnslu á myndum eða yfir höfuð tíma í það efni sem það birtir inná instagram. Sumir vilja hafa ákveðin stíl, ákveðið þema, einungis tísku, heimili eða hvað það er. Aðrir mjög frjálslegir með það efni sem það birtir. Hvort sem þú vilt hafa instagramið þitt stílhreint eða ekki, þá geta þessi forrit hér fyrir neðan einfaldað og lífgað uppá instagramið þitt.

LightRoom

iOS store Google Play

LightRoom er eina myndvinnslu forritið sem ég nota á mínar myndir. Yfirleitt tek ég myndir með myndavélinni minni og sendi þær í símann og vinn þær þar, eða vinn þær í tölvunni. En auðvitað hægt að taka myndir með sínaum og nýta sér forritið. Af mínu mati eru mestu möguleikarnir í myndvinnslu inní þessu forriti. Maður getur búið til sinn eigin filter eða nálgast tilbúna filtera á netinu. Ég segi mestu möguleikarnir vegna þess að þrátt fyrir að vera með tilbúinn filter þá getur maður stillt þá eins og maður vill!

Ég er að borga fyrir Premium, en það er hægt að gera allt sem þarf án þess að vera að borga fyrir forritið. Með Premium þá fær maður 100gb cloud geymslu, getur maður breytt RAW myndum sem er það helsta sem ég leitast eftir með áskriftinni.

 

VSCO

iOS Store | Google Play

Forritið bíður uppá samansafn af allskonar filterum. Þú getur fínstillt filterinn og einnig breytt lýsingu, cantrast og allt þetta týpíska sem þarf til þess að vinna myndir. Það er hægt að kaupa aðgang að fleiri filterum og feed-usum. Þetta forrit hentar einstaklega vel fyrir fólk sem vill breyta myndum á einfaldan máta, alls ekki flókið forrit.

 

UNFOLD

iOS StoreAndroid

Þú hefur eflaust rekist á aðila sem nota þetta forrit fyrir instagram story-ið sitt. Forritið gerir story-ið þitt mjög stílhreint og fallegt – sérstaklega ef þú vilt hafa texta með myndunum.

 

PLANOLY

iOS StoreGoogle Play

Forrit til þess að skipuleggja instagram feedið þitt. Þú getur planað hvenær hver mynd á að birtast með því að tímasetja myndina og séð hvernig instagram feed-ið þitt lýtur út fyrirfram.

 

HypeType

iOS Store Google Play

Bættu við hreyfi-texta á instastory-ið þitt. Mjög einfalt og þægilegt forrit!

CutStory

 

iOS Store | Google Play

Forrit sem klippir myndböndin þín akkúrat 15 sekúndur. Mjög hentugt fyrir instastory.

 

Snapseed 

iOS Store | Google Play

Þægilegt myndvinnsluforrit. Hægt að vinna myndir, bæta við texta á myndir og ýmislegt fleira.

 

Instagram: eydisaegis|| email: eydisaegis@gmail.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Færa leik sinn inn í Bogann

Færa leik sinn inn í Bogann
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Rooney landar nýju starfi

Rooney landar nýju starfi
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Hollywood stjarnan agndofa í beinni útsendingu – Sjáðu hver birtist á skjánum

Hollywood stjarnan agndofa í beinni útsendingu – Sjáðu hver birtist á skjánum
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ajax setur það í forgang að ráða Ten Hag aftur til starfa í sumar

Ajax setur það í forgang að ráða Ten Hag aftur til starfa í sumar
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Örvæntingarfull leit Úkraínumanna og Rússa að nýjum hermönnum

Örvæntingarfull leit Úkraínumanna og Rússa að nýjum hermönnum
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Segja samdrátt vera staðreynd í rússneska hagkerfinu

Segja samdrátt vera staðreynd í rússneska hagkerfinu
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Svona er tölfræði Mo Salah fyrir og eftir áramót

Svona er tölfræði Mo Salah fyrir og eftir áramót
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Manstu eftir Joseph Kony? Nú eru málaliðar Pútíns á eftir honum

Manstu eftir Joseph Kony? Nú eru málaliðar Pútíns á eftir honum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.