fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024

Góð ráð til þess að forðast bílveiki

Amare
Föstudaginn 21. desember 2018 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef alla mína ævi verið mjög bílveik. Þegar ég var barn gat ég varla farið í smá rúnt án þess að finna fyrir ógleði. Sem betur fer hefur þetta skánað aðeins með árunum, en núna á þessari meðgöngu er ég orðin aftur jafn slæm og ég var sem krakki. Hér eru nokkur atriði sem ég passa alltaf upp á þegar ég fer í bíl til þess að forðast bílveikina:

Keyra

  • Ef ég keyri bílinn verð ég ekki bílveik, en þar sem að ég er orðin frekar slæm í bakinu treysti ég mér ekki til að keyra ef við erum að fara langa leið.

Horfa út um gluggann

  • Ég passa mig á að horfa mest megnis út um gluggann, ef ég horfi of mikið inn í bílinn verð ég frekar bílveik. Ég passa mig líka að vera ekki of mikið í símanum, ég næ heldur ekki að lesa bók eða eitthvað svoleiðis þar sem þá finn ég að ógleðin er mun fljótari að koma.

Ferskt loft

  • Ef ógleðin er byrjuð að koma, finnst mér oft hjálpa að láta kalt loft blása á mig eða opna gluggann og þá minnkar hún.

Stoppa

  • Ef ekkert virkar og við höfum nægan tíma er líka oft mjög gott að stoppa í smástund og stíga aðeins út úr bílnum.

Bílveikistöflur

  • Ég tek alltaf bílveikistöflur fyrir löng ferðalög og hef ég gert það frá því að ég var barn. Að mínu mati virka þær lang best við bílveikinni og passa ég að taka þær alltaf hálftíma til klukkutíma áður við leggjum á stað. Ég passa líka að borða ekkert með töflunni þar sem ég hef lent í því oftar en einu sinni að það komi allt upp aftur á leiðinni.

Ég skal alveg viðurkenna að ég þoli ekki að taka þessar töflur og byrja að kúgast bara við lyktina af þeim en það er sennilega vegna þess hve oft þær voru þvingaðar ofan í mig sem barn.

Töflurnar heita postafen og fást ódýrt í að ég held öllum apótekum.

Færslan er skrifuð af Kristjönu Ástu og birtist upphaflega á Amare.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Arteta virðist gefast upp á Jesus sem nú er til sölu

Arteta virðist gefast upp á Jesus sem nú er til sölu
Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Tvær milljónir króna í reiðufé gerðar upptækar – Voru í fórum manns sem finnst ekki

Tvær milljónir króna í reiðufé gerðar upptækar – Voru í fórum manns sem finnst ekki
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Kjartan vill að stakir frídagar verði færðir að helgum: Slíta í sundur vinnuvikuna og valda margvíslegu ónæði

Kjartan vill að stakir frídagar verði færðir að helgum: Slíta í sundur vinnuvikuna og valda margvíslegu ónæði
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Komu öllum á óvart í vetur og tryggðu sér Meistaradeildarsæti – Voru í fallbaráttu í fyrra

Komu öllum á óvart í vetur og tryggðu sér Meistaradeildarsæti – Voru í fallbaráttu í fyrra
EyjanFastir pennar
Fyrir 7 klukkutímum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Misheppnuð tilraun snýst um prinsipp

Þorsteinn Pálsson skrifar: Misheppnuð tilraun snýst um prinsipp
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Prófessor segir að háskólanemar stundi ekki nógu mikið kynlíf og það ýti þeim út í þetta

Prófessor segir að háskólanemar stundi ekki nógu mikið kynlíf og það ýti þeim út í þetta

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.