fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Fyrsta verslun H&M verður í Smáralind – Opnun í ágúst!

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 8. maí 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú fer heldur betur að styttast í að H&M opni fyrstu verslun sína á Íslandi. Verslunin muni opna í Smáralind í ágúst á þessu ári. Hún verður um 3000 fermetrar á tveimur hæðum. En H&M mun ekki láta eina verslun duga heldur á líka að opna í Kringlunni og Hafnartorgi í miðbænum.

Filip Ekvall, svæðisstjóri H&M í Noregi og á Íslandi segir að hjá fyrirtækinu sé fólk hæstánægt með að vera loks að opna verslanir á Íslandi. „H&M snýst um innblástur og persónulegan stíl og því er það okkur mikill heiður að geta boðið íslenskum viðskiptavinum upp á allar okkar fatalínur.”

„Við vitum að lengi hefur verið beðið eftir komu H&M til Íslands og hlökkum mikið til að geta hrifið með okkur þjóðina og staðið undir væntingum. Þar að auki erum við gífurlega stolt af nýráðnu samstarfsfólki okkar í H&M á Íslandi – við höfum fundið frábært teymi fyrir verslanir okkar.“

Í fréttatilkynningu kemur fram að allar fatalínur muni verða í boði í versluninni í Smáralind. Dömu- og herrafatnaður, barnaföt, skór, aukahlutir, undirföt og snyrtivörur. Að auki munu sérstakar línur verða teknar í sölu eins og H&M Studio og Conscious Exclusive.

 

Það verður spennandi að sjá haustlínur H&M í Smáralindinni í ágúst!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Liverpool taki ekki í mál að selja

Liverpool taki ekki í mál að selja
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.