fbpx
Föstudagur 16.maí 2025

Súkkulaðikaka með Dumle fyllingu og karamellukremi

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 17. apríl 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Algjörlega ómótstæðileg súkkulaðikaka með Dumle fyllingu og karamellukremi sem er sérstaklega einföld í gerð. Kökuna má gera fram í tímann og frysta með kreminu á sem gerir allt svo miklu einfaldara. Hér er á ferðinni nýtt uppáhald sem slær í gegn við fyrsta bita!

Karamellufyllt súkkulaðikaka með karamellukremi…algjör draumur

Dumle súkkulaðikaka með karamellukremi

150 g smjör
100 g dökkt súkkulaði
120 g (1 poki) Dumle
4 egg
2 1/2 dl sykur
1 tsk vanilluduft
2 1/2 dl hveiti

Dumle Karamellukrem

2 msk rjómi
120 g (1 poki) Dumle
100 g smjör, við stofuhita
4-5 dl flórsykur

Leiðbeiningar

Kakan

  1. Bræðið smjör, súkkulaði og Dumle karamellur saman í potti við lágan hita. Hærið þar til allt hefur blandast vel saman. Takið af hellunni og kælið lítillega.
  2. Hrærið egg og sykur vel saman. Hellið því næst volgri súkkulaðiblöndunni saman við og hrærið stöðugt á meðan.
  3. Sigtið hveiti og vanillusykri saman við og hrærið vel þar til deigið er orðið kekkjalaust.
  4. Smyrjið 30×22 cm form eða spreyið með PAM olíu.  Hellið deiginu í formið og bakið við 175°c heitan ofn í um 25 mínútur. Kælið kökuna áður en karamellukremið er sett á.

Kremið

  1. Gerið karamellukremið með því að setja rjóma og karamellur í pott og bræða saman við lágan hita. Takið síðan af hellunni og kælið lítillega.
  2. Hrærið smjörið þar til það er orðið létt og ljóst og hellið þá karamellublöndunni saman við. Hrærið flórsykri saman við þar til þykktin er orðin eins og þið óskið (ath þið þurfið ekki að nota allan flórsykurinn).
  3. Þegar kakan hefur kólnað smyrjið þá karamellukreminu á hana. Borðið og njótið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Ert þú ofur-sofari? Sjaldgæf stökkbreyting gerir að verkum að sumir þurfa bara 4 klukkustunda svefn

Ert þú ofur-sofari? Sjaldgæf stökkbreyting gerir að verkum að sumir þurfa bara 4 klukkustunda svefn
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Heyrir iPhone brátt sögunni til? – Yfirmaður Apple gaf það í skyn

Heyrir iPhone brátt sögunni til? – Yfirmaður Apple gaf það í skyn
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

7 ára stúlka fannst í skáp – Hafði verið svelt – Leita nú að systur hennar sem hefur ekki sést síðan 2017

7 ára stúlka fannst í skáp – Hafði verið svelt – Leita nú að systur hennar sem hefur ekki sést síðan 2017
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Karlar líklegri en konur til að deyja úr brostnu hjarta

Karlar líklegri en konur til að deyja úr brostnu hjarta
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ótrúlegt að enginn hafi látið lífið í kvöld – Sjáðu atvikið þegar ökumaður reyndi að keyra niður hóp fólks

Ótrúlegt að enginn hafi látið lífið í kvöld – Sjáðu atvikið þegar ökumaður reyndi að keyra niður hóp fólks

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.