fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Kókoskjúklingur með döðlum, hvítlauk og kasjúhnetum

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 13. maí 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég fell ávallt kylliflöt fyrir kjúklingaréttum sem innihalda döðlur enda slá þannig réttir alltaf í gegn. Má þar kannski helst nefna snilldarkjúklingaréttinn með döðlum og beikoni sem sló eftirminnilega í gegn og er einn af vinsælli réttum GRGS fyrr og síðar.

Þessi kjúklingaréttur sem hér birtist og inniheldur meðal annars kókosmjólk, chilí, hvítlauk og döðlur er einn af (alltof mörgum) uppáhaldsréttum fjölskyldunnar. Hann er svo dásamlega einfaldur í gerð og hægt að leika sér með hráefnin eftir því hvað til er í ískápnum. Ég skipti til dæmis kasjúhnetum út fyrir möndluflögur og var það engu síðra. Frábær réttur með hrísgrjónum og naan. Njótið, njótið og njótið!

Kókoskjúklingur með hvítlauk, döðlum og kasjúhnetum

900 g kjúklingalundir eða læri, t.d. frá Rose Poultry
1 msk ólífuolía
2 cm ferskt engifer, fínrifið
3 hvítlauksrif, smátt söxuð
1 rauður chilí, saxaður
1 tsk tumeric
1 tsk kardimommukrydd
2 msk soya sósa, t.d. Dark soy sauce frá Blue dragon
1 dós kókosmjólk, t.d. Coconut milk frá Blue dragon
100 g kasjúhnetur, gróflega saxaðar
150 g döðlur, steinlausar
salt og pipar
1/2 búnt ferskt kóríander, saxað

  1. Skerið kjúklinginn í litla bita.
  2. Hitið olíu á pönnu og og steikið kjúklinginn.
  3. Bætið engifer, hvítlauk og chili saman við.
  4. Bætið því næst kryddinu saman við og blandið vel saman.
  5. Bætið soyasósunni saman við. Bætið síðan kókosmjólkinni saman við og látið malla í 2-3 mínútur. Smakkið til með salti og pipar.
  6. Setjið döðlurnar og kasjúhneturnar saman við hellið í ofnfast mót og eldið við 180°c í um 10-15 mínútur. Takið úr ofni og stráið kóríander yfir allt.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Þrjú orð – Trump spyr sömu spurningarinnar hvað eftir annað

Þrjú orð – Trump spyr sömu spurningarinnar hvað eftir annað
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Þriggja ára stúlka vakti óhug hjá móður sinni – Sagðist muna fyrra líf sitt og nefndi hrollvekjandi dæmi

Þriggja ára stúlka vakti óhug hjá móður sinni – Sagðist muna fyrra líf sitt og nefndi hrollvekjandi dæmi
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
EyjanFastir pennar
Fyrir 17 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Til hvers að læra tungumál?

Björn Jón skrifar: Til hvers að læra tungumál?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.