fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Hollur og góður pastaréttur frá Röggu – Auðvelt að gera vegan útgáfu

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 1. mars 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á veturna birtast girnileg grasker í grænmetisdeildum verslana. Því miður er ræktun graskera ekki algeng á Íslandi, og þó að tilraunir hafi verið gerðar með ræktun í gróðurhúsum hafa afurðirnar ekki skilað sér í verslanir í neinum mæli. Graskerin sem við getum keypt hér á landi eru oftast innflutt frá Spáni eða Bretlandi.

Rófur eru hins vegar ræktaðar hér án nokkurra vandkvæða, en þær eru mögulega eitt vanmetnasta hráefni sem okkur stendur til boða. Löng hefð er fyrir notkun þeirra í kjötsúpur og rófustöppur, og mörgum finnst gott að naga þær hráar, en þar með er notkunin hér um bil upptalin.

Í þessum einfalda pastarétti er uppistaðan hunangshnetugrasker (e. butternut squash) og rófur. Rétturinn er eldaður í einum potti, svo uppvaskið er í lágmarki.

Auðvelt er að gera vegan útgáfu af réttinum – sjá innihaldsefni innan sviga!

Innihald:
50 g smjör eða smjörvi (V: ólífuolía)

4 smátt skornir skalotlaukar eða 1 gulur laukur

1 tsk. þurrkuð salvía

1 tsk. þurrkað rósmarín

2 bollar niðurskorið grasker (butternut)

1 bolli niðurskornar rófur

1 bolli grænmetissoð (1 teningur í sjóðandi vatn)

2 bollar nýmjólk (V: jurtamjólk)

11/2 bolli vatn

1 bolli rifinn parmesanostur (V: vegan „parmesenostur“)

1/4 tsk. negull

1 tsk. kanill

1 msk. púðursykur

2 tsk. salt

2 tsk. svartur nýmulinn pipar

Spaghettí fyrir fjóra (400–500 g)

Aðferð:
Bræðið smjörið í stórum potti, steikið laukinn og þurrkaða kryddið við miðlungsháan hita í nokkrar mínútur, bætið graskeri og rófum út í pottinn og steikið í 5 mínútur í viðbót. Hellið grænmetissoði út í, setjið lok á pottinn og látið malla í 15 mínútur. Stappið saman með kartöflustappara. Bætið mjólk, vatni, osti, sykri og kryddi í pottinn og hitið aftur að suðu. Bætið spaghettí út í og hrærið stöðugt á meðan það sýður í þann tíma sem gefinn er upp á pakkanum.


Berið fram með heilmiklu af rifnum parmesanosti og gómsætum ferskum kryddjurtum ef þær eru til í eldhúsinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Liverpool taki ekki í mál að selja

Liverpool taki ekki í mál að selja
Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.