fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Hún komst að framhjáhaldi kærastans á Instagram síðu Burger King

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 12. febrúar 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður í Bandaríkjunum lenti nú heldur illa í því þegar hann kvartaði yfir þjónustu Burger King á Instagram síðu skyndibitastaðarins. „Gellan mín var í 20 mínútur að panta í bílalúgunni í gær,“ skrifaði hann á síðuna. Hins vegar kom þessi kvörtun fljótt í bakið á honum þegar kærastan hans sá ummælin og undraði sig á því um hvað hann væri að tala þar sem hún fór ekki með honum á Burger King kvöldið áður.

Umm afsakaðu?? Ég man ekki eftir að hafa farið í gær eða einhverntíman talað um að mér finnst Burger King gott. Um hvern ertu að tala?

Hún bætti svo við: „Jordan svaraðu í f***** símann.“

Hann var fljótur að reyna að redda sér og sagði henni að slaka á.

@shanlee_rose þú verður að slaka á, ég var með @kitcass09 og við vorum bara að spjalla saman.

 

Kærastan átti erfitt með að trúa því og taggaði tvær vinkonur sínar við færsluna. Vinkonurnar höfðu enga trú að hann væri að segja satt og hafa greinilega ekki verið sáttar við drenginn fyrir þetta atvik. Ein skrifaði „ég f***** vissi það“ og hin „ég sagði þér að ég sá hann með stelpu á Rogue One.“

Lokaslagið varð þegar @kitcass01, sú sem Jordan sagðist hafa verið með umrætt kvöld, tók þátt í umræðunum og skrifaði: „Vinsamlegast ekki blanda mér í þetta.“ Kærastan var ekki lengi að svara henni: „Fok**** þér, þú komst þér sjálf í þetta feita tík.’“

Þar með var þessu þó ekki lokið en @shanlee_rose ákvað að ljúka sambandinu fyrir fullt og allt á Instagram síðunni og skrifaði : „Ég vona að hamborgarinn hafi verið þess virði. Draslið þitt er úti.“

Úff.. þetta er rosalegt! Eins og sést þá voru aðrir notendur Instagram að skemmta sér konunglega yfir ummælunum á færslunni, sumir áttu erftitt með að trúa að þau væru vitni að sambandslitum á Instagram síðu Burger King. En allt getur nú gerst..

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Steinar ferðaðist með bleika ferðatösku – Er hann afkastamikill raðmorðingi?

Steinar ferðaðist með bleika ferðatösku – Er hann afkastamikill raðmorðingi?
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.