fbpx
Laugardagur 27.september 2025

Breyttu bílnum í snotra íbúð: Kostnaðurinn kom þeim á óvart

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 22. september 2016 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki bara á Íslandi sem ungt fólk á í erfiðleikum með að kaupa sér sína fyrstu fasteign því ungir Bretar hafa ekki farið varhluta af hækkandi fasteignaverði.

Kærustuparið Adam Croft og Nikki Pepperell ákvað að fara heldur óhefðbundna leið í leit sinni að íbúð fyrir skemmstu. Í stað þess að lenda í skuldafangelsi það sem eftir er komust þau að þeirri niðurstöðu að hægt væri að fara ódýrari leið. Allt var þetta spurning um hvað þau gátu sætt sig við.

Adam, sem er 29 ára, og Nikki, sem er 32 ára, ákváðu því að leita sér að flutningabíl á uppboðsvefnum eBay. Þau fundu forláta Ford Transit-bifreið sem þau festu kaup á. Næsta árið fór í að innrétta bifreiðina og nú er heimili þeirra í bílnum tilbúið.

Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér er heimili þessa unga pars nokkuð snoturt. Þar er allt til alls og þó að plássið sé ef til vill ekki mikið er það nóg fyrir þau tvö. Þarna er að finna lítið eldhús, klósett, sturtu, stofu og svefnrými. Og það sem meira er þá gerðu þau þetta án þess að setja sig á hausinn. Raunar kom það þeim á óvart hversu ódýrt þetta var. Bíllinn og innréttingarnar kostuðu tæpar tvær milljónir króna.

Adam og Nikki ætla að verðlauna sig fyrir að hafa tekið þessa frábæru ákvörðun. Þau stefna á ferðalag um Evrópu á bílnum – og taka heimilið að sjálfsögðu með sér.

Þó plássið sé ekki mikið er það meira en nóg fyrir þau bæði.
Eldhúsið er meira að segja nokkuð rúmgott.

Birtist fyrst í DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Starfskona á barnaheimili dæmd fyrir ofbeldi gegn 21 barni – „Aðeins verstu manneskjur ráðast á varnarlaus börn“

Starfskona á barnaheimili dæmd fyrir ofbeldi gegn 21 barni – „Aðeins verstu manneskjur ráðast á varnarlaus börn“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Góð tíðindi fyrir Fantasy-spilara

Góð tíðindi fyrir Fantasy-spilara
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Rotnandi líkið í Teslunni – Segir galið að söngvarinn hafi ekki verið handtekinn og ákærður fyrir barnaníð

Rotnandi líkið í Teslunni – Segir galið að söngvarinn hafi ekki verið handtekinn og ákærður fyrir barnaníð
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arne Slot segir að um falsfrétt hafi verið að ræða – „Hjá þessu félagi má gera mistök án þess að fá sekt“

Arne Slot segir að um falsfrétt hafi verið að ræða – „Hjá þessu félagi má gera mistök án þess að fá sekt“
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Ásmundur Einar hættur í stjórnmálum

Ásmundur Einar hættur í stjórnmálum
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Annað merki á Vestfjörðum veldur kergju – „Hvort er ljótara? þetta merki eða nýja merkið hjá Vesturbyggð?“

Annað merki á Vestfjörðum veldur kergju – „Hvort er ljótara? þetta merki eða nýja merkið hjá Vesturbyggð?“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.