Rokk og ról í höfuðborg Norðurlands
Á næsta ári mun tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fara fram í fyrsta skipti á tveimur stöðum, í Reykjavík og á Akureyri. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi á Akureyri í gær, fimmtudag. 20 til 26 innlendar og erlendar hljómsveitir munu spila á Græna hattinum og fleiri stöðum á Akureyri auk hefðbundinnar dagskrár víðs vegar um höfuðborgina. Ekki er ljóst hvaða sveitir munu koma fram á tónleikunum.
Að vissu leyti má segja að Iceland Airwaves eigi rætur að rekja til Akureyrar, en vorið 1999 var áhrifafólki úr tónlistarbransanum boðið til Íslands að hlýða á íslenska tónlistarmenn á tónleikum á Akureyri. Á þessum grunni var byggt þegar fyrsta Airwaves-hátíðin var haldin seinna sama ár.