Uppáhald allra, tónlistamaðurinn Friðrik Dór, sendi frá sér nýtt lag í gær. Um er að ræða ákaflega hljómþýða ábreiðu af slagarnanum „Fröken Reykjavík“ sjá myndband að neðan. Myndbandið vann Jakob Gabríel Þórhallsson og teikningarnar voru í höndum Svövu Rúnar Sturludóttur.
Myndbandið hefur fengið umtalsvert áhorf eða um fimmþúsund views svona á fyrsta degi. Má það teljast undravert og líklegt er að lagið njóti áberandi vinsælda líkt og fleiri lög eftir kappann. Þar má nefna „Dönsum (eins og hálfvitar)“, „Skál fyrir þér“ og „Fyrir hana“.