fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fókus

Uma Thurman afhjúpar af hverju hún bjó aldrei í Hollywood

Fókus
Fimmtudaginn 19. mars 2026 08:20

Uma Thurman

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska leikkonan Uma Thurman byggði upp feril sinn án þess að búa í Hollywood. Thurman sem líklega er þekktust fyrir hlutverk sitt í Kill Bill myndum Quentin Tarantino sagði í einkaviðtali við InStyle að sú ákvörðun að búa aldrei í kvikmyndaborginni hefði þó hugsanlega kostað hana dýpri tengsl við kvikmyndaiðnaðinn.

„Ég óskaði þess í raun alltaf að ég hefði flutt til Los Angeles,“ segir Thurman í forsíðuviðtali.

„Ég fékk meira að segja íbúð þar á einum tímapunkti vegna þess að ég vann þar mjög oft og um leið og ég skrifaði undir leigusamninginn varð ég ólétt af dóttur minni innan, svona sex vikna.“

Í stað þess að setjast að í Los Angeles valdi Thurman fjölskylduna fram yfir að vera nálægt Hollywood. Thurman bætti þó við að þótt ákvörðunin væri hagnýt, fylgdu henni málamiðlanir.

„Ég dvaldi aldrei í Los Angeles og þess vegna samlagaðist ég aldrei samfélaginu í minni starfsgrein og mér finnst það synd,“ hélt hún áfram. „Ég átti meira samfélag með hinum mæðrunum í barnaskólanum á 16. götu og Rutherford Place, og það er í lagi. En ég vildi óska ​​að ég hefði átt þennan kafla í Hollywood. Ég held að mér hefði virkilega líkað það.“

Thurman segist þó ekki velta sér upp úr glötuðum tækifærum. „Ég held að ákvörðunin um að vera hamingjusöm sé eitthvað sem maður ætti að taka, óháð skilyrðum,“ sagði hún.

Thurman var áður gift leikaranum Ethan Hawke, en þau kynntust við tökur á myndinni Gattaca árið 1997. Þau giftu sig árið 1998 og árið 2004 sótti Thurman um skilnað frá Hawke eftir að þau höfðu verið aðskilin í nokkur ár. Þau eiga tvö börn saman, Mayu og Levon.

Hawke giftist Ryan Shawhughes árið 2008 og eiga þau tvær dætur saman, Clementine og Indiana. Thurman og Arpad Busson trúlofuðu sig árið 2008 en upp úr sambandinu slitnaði  árið 2009. Parið var saman með hléum þar til þau slitu sambandi fyrir fullt og allt árið 2014. Þau eignuðust dótturina Lunu árið 2012.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Bonnie Blue í bobba
Fókus
Fyrir 2 dögum

Beggi með ráð um hvernig þú bregst við áliti annarra – „Þetta er kannski ekki vinsæl skoðun“

Beggi með ráð um hvernig þú bregst við áliti annarra – „Þetta er kannski ekki vinsæl skoðun“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Óskarinn: Myndirnar sem hefðu átt að vinna en unnu ekki

Óskarinn: Myndirnar sem hefðu átt að vinna en unnu ekki
Fókus
Fyrir 3 dögum

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga
Fókus
Fyrir 3 dögum

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum

Óskarinn uppskeruhátíð kvikmyndanna – Stjörnurnar stórglæsilegar á rauða dreglinum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Jónas Sen fór á tónleika í Hörpu og var ekki hrifinn – „Keisarinn var allsber“

Jónas Sen fór á tónleika í Hörpu og var ekki hrifinn – „Keisarinn var allsber“