

Bandaríska leikkonan Uma Thurman byggði upp feril sinn án þess að búa í Hollywood. Thurman sem líklega er þekktust fyrir hlutverk sitt í Kill Bill myndum Quentin Tarantino sagði í einkaviðtali við InStyle að sú ákvörðun að búa aldrei í kvikmyndaborginni hefði þó hugsanlega kostað hana dýpri tengsl við kvikmyndaiðnaðinn.
„Ég óskaði þess í raun alltaf að ég hefði flutt til Los Angeles,“ segir Thurman í forsíðuviðtali.

„Ég fékk meira að segja íbúð þar á einum tímapunkti vegna þess að ég vann þar mjög oft og um leið og ég skrifaði undir leigusamninginn varð ég ólétt af dóttur minni innan, svona sex vikna.“
Í stað þess að setjast að í Los Angeles valdi Thurman fjölskylduna fram yfir að vera nálægt Hollywood. Thurman bætti þó við að þótt ákvörðunin væri hagnýt, fylgdu henni málamiðlanir.
„Ég dvaldi aldrei í Los Angeles og þess vegna samlagaðist ég aldrei samfélaginu í minni starfsgrein og mér finnst það synd,“ hélt hún áfram. „Ég átti meira samfélag með hinum mæðrunum í barnaskólanum á 16. götu og Rutherford Place, og það er í lagi. En ég vildi óska að ég hefði átt þennan kafla í Hollywood. Ég held að mér hefði virkilega líkað það.“
Thurman segist þó ekki velta sér upp úr glötuðum tækifærum. „Ég held að ákvörðunin um að vera hamingjusöm sé eitthvað sem maður ætti að taka, óháð skilyrðum,“ sagði hún.
Thurman var áður gift leikaranum Ethan Hawke, en þau kynntust við tökur á myndinni Gattaca árið 1997. Þau giftu sig árið 1998 og árið 2004 sótti Thurman um skilnað frá Hawke eftir að þau höfðu verið aðskilin í nokkur ár. Þau eiga tvö börn saman, Mayu og Levon.
Hawke giftist Ryan Shawhughes árið 2008 og eiga þau tvær dætur saman, Clementine og Indiana. Thurman og Arpad Busson trúlofuðu sig árið 2008 en upp úr sambandinu slitnaði árið 2009. Parið var saman með hléum þar til þau slitu sambandi fyrir fullt og allt árið 2014. Þau eignuðust dótturina Lunu árið 2012.