

Aðdáendur Strandvarða geta nú tekið gleði sína á ný því bandarísku þættirnir Baywatch hafa nú verið endurvaktir.
Þættirnir með David Hasselhoff í fararbroddi nutu mikilla vinsælda á árunum 1989-2000, 11 þáttaraðir og 241 þáttur, auk sérstaks reunion þáttar lágu í valnum. Þættirnir fjalla eins og aðdáendur vita um strandverði á ströndum Los Angeles í Kaliforníu og líf þeirra í leik og starfi. Margar senur sýna þá hlaupa um í eldrauðum sundbol eða eldrauðri sundskýlu og gætu allir leikarar unnið 1. sæti í fegurðarsamkeppnum. Kvikmynd fylgdi síðan í kjölfarið 2017 með Dwayne The Rock Johnson og Sac Efron í aðalhlutverkum.
Nú er komið að langþráðri endurkomu eða reboot eins og það heitir upp á ensku, en umræður og vinnsla hafa verið í gangi frá árinu 2018. Á meðal leikara eru Stephen Amell sem leikur Hobie Buchannon, son Mitch sem Hasselhoff lék í eldri þáttunum, en Hobie fylgir í fótspor föður síns sem fyrirliði strandvarða. Aðrir leikarnar eru David Chokachi sem endurtekur hlutverk sitt sem Cody Madison frá þáttaröðum 6 til 9 af eldri þáttaröðinni, Jessica Belkin, Thaddeus LaGrone, Hassie Harrison, Brooks Nader, Noah Beck og Shay Mitchell.






Leikararnir mættu í þjálfun í sjónum á Venice Beach í Kaliforníu á þriðjudaginn til að undirbúa sig fyrir þættina. Leikararnir vinna með reyndum lífvörðum til að ná tökum á réttum aðferðum.
Nader og fyrrverandi fimleikakonan Dunne hafa báðar setið fyrir hjá Sports Illustrated og eru að sögn spenntar fyrir að vinna saman aftur. „Þær eru að skemmta sér svo vel og koma með orkuna frá Sports Illustrated beint á Baywatch ströndina.“



