

Leikarinn Brad Pitt vann stórsigur í málaferlum sínum við fyrrverandi eiginkonu sína, leikkonuna Angelinu Jolie, vegna franskrar víngerðar þeirra, Château Miravel.
Dómari úrskurðaði Pitt í vil um að Jolie er skylt að afhenda einkatölvupósta og skilaboð varðandi sölu á hennar hluta í víngarðinum, sem þau keyptu meðan þau voru gift.
Heimildarmaður Page Six segir að „tölvupóstarnir myndu sanna að Jolie hefði verið óheiðarleg frá upphafi varðandi raunverulegar áætlanir sínar um að selja hlut sinn í fyrirtækinu.“
Jolie hefur 45 daga til að skila gögnunum til dómara. Lögmaður hennar, Paul Murphy, sagði þau „vonsvikin með túlkun dómstólsins á forréttindalögum Kaliforníu.“
„Úrskurður dómstólsins brýtur gegn þessum lögum, grefurr undan grundvallarrétti Jolie til sanngjarnrar málsmeðferðar og er enn ein birtingarmynd áralangrar viðleitni Pitts til að áreita hana og stjórna henni. Við munum áfrýja,“ sagði lögmaðurinn.
Þessi úrskurður er hluti af málsókn Pitts gegn Jolie fyrir að hafa að hans mati ólöglega selt hlut sinn í vínekrunni til Stoli-samstæðunnar árið 2021.
Í kærunni í febrúar hélt Pitt því fram að hann og Jolie, sem keyptu eignina árið 2008 fyrir 28,4 milljónir dala, hefðu komið sér saman um að selja ekki hluti sína án þess að ráðfæra sig við hvort annað.
Áætlun fyrrum hjónanna, sem giftu sig árið 2014 og skildu árið 2019, var að ala upp börn sín á vínekrunni og byggja þar upp fjölskyldufyrirtæki.
Í október krafði Pitt Jolie um að leggja fram samskipti við viðskiptastjóra hennar, Terry Bird, Chloe Dalton og Arminka Helic, kynningarfulltrúa hennar og tvo fjármálaráðgjafa. Í kröfunni fullyrti Pitt að Jolie efði átt samskipti við Bird um einkalíf hennar og starf, þar á meðal málaferlin.
„Jolie viðurkenndi að Bird „hjálpaði henni að bera kennsl á frekari mál sem hún gæti leitað ráða um,“ segir í kröfunni.
„Það sem Jolie lýsir hér eru hugmyndafundir milli aðila sem eru ekki lögfræðingar,“ segir jafnframt í kröfunni „Sú staðreynd að þessir hugmyndafundir kunna að hafa komið í kjölfar eða á undan ráðleggingum frá lögmanni um sama almenna efni eða tengt efni verndar þá ekki gegn uppljóstrun.“
Pitt telur að samskipti Jolie við Bird varðandi söluskilmála til Stoli-samstæðunnar árið 2021 séu lykilatriðið í þessum málaferlum. Jolie hélt því fram að hún þyrfti ekki að senda tölvupóstana og skilaboðin því þau væru hluti af viðræðum hennar um lagaleg mál við aðra.Sakar hún Pitt um að vilja hnýsast í „trúnaðarsamskipti skjólstæðings síns við lögfræðinga hennar“.
„Þetta staðfestir enn og aftur að þessi málsókn er birtingarmynd áralangrar viðleitni Pitts til að áreita og stjórna Angelinu,“ sagði Murphy í yfirlýsingu.