fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025
Fókus

Grindvíkingar syngja um þrána eftir heimahögunum – Myndband

Fókus
Laugardaginn 31. maí 2025 17:30

Úr myndbandinu við Aftur heim. Skjáskot/Youtube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun verður sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur víða um land þar á meðal í sjávarútvegsbænum mikla Grindavík. Hin árlega sjómannadagshátíð Grindvíkinga, Sjóarinn síkáti, var haldin í Reykjavík á síðasta ári af augljósum ástæðum en verður haldin á ný í Grindavík nú í ár og væntanlega er þetta liður í viðleitni Grindvíkinga við að endurreisa bæinn sinn. Af því tilefni hefur lagahöfundurinn Hanna Sigurðardóttir, sem sjálf er úr Grindavík, gert íslenskan texta við lagið From Now On úr kvikmyndinni The Greatest Showman sem hún tileinkar öllum Grindvíkingum og ber lagið, í þessari útgáfu, viðeigandi titil, Aftur heim. Í útgáfu Hönnu er einmitt sungið um þrá Grindvíkinga eftir því að komast aftur heim til sín.

Hátíðahöldin hafa raunar staðið í Grindavík síðan í miðri viku en hátíðin ber þó ekki hið hefbundna heiti og er látlausari en tíðkaðist áður en hinar miklu hörmungar dundu yfir íbúa bæjarins, fyrst í nóvember 2023.

Það er annar Grindvíkingur Tómas Guðmundsson sem flytur lagið ásamt kórnum Grindavíkurdætur en öll sem koma að flutningi lagsins og gerð myndbands við það eru Grindvíkingar.

Tómas segir um lagið á samfélagsmiðlum:

„Gleðilegan sjómannadag. Í hjartanu viljum við öll fara heim. Aðstæður eru mismunandi, verum góð hvert við annað. Þetta frábæra framtak á Hanna Sigurðardóttir skuldlaust, það er mér sannur heiður að fá að taka þátt í þessu verkefni.“

Hanna hefur áður sent frá sér myndbönd og lög í tilefni Sjómannadagsins en líklega hafa fæst þeirra verið eins tilfinningaþrungið og þetta. Myndbandið er tekið í Grindavík og í því kemur fjöldi Grindvíkinga fram. Myndbandið við Aftur heim má sjá hér að neðan.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Borgarfulltrúi lýsir æsilegum eltingaleik – „Ferðast á hraða ljóssins“

Borgarfulltrúi lýsir æsilegum eltingaleik – „Ferðast á hraða ljóssins“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sögðu já í gær í Mexíkó

Sögðu já í gær í Mexíkó
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín útnefnd heiðursfélagi Hins íslenska töframannagildis

Katrín útnefnd heiðursfélagi Hins íslenska töframannagildis
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rose Leslie vill ekki að börnin sín sjái eitt tiltekið atriði í Game of Thrones

Rose Leslie vill ekki að börnin sín sjái eitt tiltekið atriði í Game of Thrones