Dylan hefur hins vegar látið lítið fyrir sér fara á síðustu árum þrátt fyrir fjölda tilboða um að leika í þáttum og kvikmyndum. Frá því að 13 Reasons Why lauk göngu sinni hefur Dylan aðeins komið að tveimur verkefnum, myndinni Scream frá árinu 2022 og þáttunum The Dropout.
Leikarinn var gestur hlaðvarpsþáttarins Zach Sang Show þar sem hann ræddi ferilinn í leiklist, en hann var aðeins átta ára þegar hann byrjaði að leika.
„Ég var heppinn að finna velgengni í leiklistinni. 13 Reasons Why-þættirnir voru mjög vinsælir og þá náði ég einhvers konar hátindi. En þetta var líka farið að vera eins og venjulegt starf,“ segir Dylan sem hefur síðustu misseri einbeitt sér að tónlistarferli sínum með hljómsveitinni Wallows.
Hljómsveitin var stofnuð árið 2011 og í henni spilar hann á gítar og syngur. Sveitin hefur notið nokkurrar velgengni og er með plötusamning við Atlantic Records.
„Ég er á þeim tímapunkti núna að mig langar að sinna tónlistinni og komast eins langt þar og ég get. Þetta er alvöru hljómsveit og við ætlum að gera alvöru hluti,“ segir hann.
Dylan útilokar þó ekki að snúa aftur á hvíta tjaldið. „Mér finnst ég enn eiga eitthvað eftir í leiklistinni. Á einhverjum tímapunkti, þegar ég hef náð markmiðum mínum með Wallows, þá mun ég sennilega finna hvatninguna til að gera eitthvað meira þar.“