Berry var á meðal gesta á ráðstefnu um heilsu kvenna, A Day of Unreasonable Conversation, á dögunum þar sem Halle tók til máls auk Jane Fonda og Kerry Washington.
Halle Berry, sem er 57 ára, var 54 ára þegar hún hitti draumaprinsinn, tónlistarmanninn Van Hunt. Stuttu eftir að kynni þeirra hófust rifjaði Halle upp að hún hafi fundið fyrir sárum verkjum á kynfærasvæðinu kvöld eitt þegar þau stunduðu kynlíf.
Hún ákvað því að kíkja til læknis sem skoðaði hana og það tók hann ekki ýkja langan tíma að skella fram sinni ályktun. Sagði hann að hún væri með eitt versta tilfelli af herpes sem hann hefði séð.
Halle segist hafa farið í nánari skoðun og það hafi Van Hunt einnig gert, en niðurstaðan í báðum tilfellum var að hvorugt þeirra var með herpes, sem stundum er kallað kynfæraáblástur hér á landi.
Eftir að málið var skoðað nánar kom í ljós að um var að ræða eitt af einkennum breytingaskeiðs kvenna. Það sem læknirinn taldi að væri herpes var í raun og veru sársauki sem orsakaðist af miklum þurrki í leggöngum sem stundum kemur fram á breytingaskeiðinu.
„Læknirinn minn hafði ekki hugmynd um þetta og ég hugsaði strax með mér að ef til vill væru margar konur í sömu sporum,“ sagði Berry sem ákvað að deila þessari reynslu á umræddri ráðstefnu.
Halle Berry er margverðlaunuð leikkona en hennar stærsti sigur á hvíta tjaldinu kom árið 2002 þegar hún var valin besta leikkonan á Óskarsverðlaunahátíðinni fyrir myndina Monster‘s Ball.