fbpx
Þriðjudagur 07.maí 2024
Fókus

„Þessi tegund af fíkn kallar á skuggahliðarnar í manni”

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 27. nóvember 2023 18:17

Valdimar Örn Flygenring Mynd: Skjáskot YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valdimar Flygenring, tónlistarmaður og leikari segist aldrei hafa átt séns þegar kom að áfengi, sem tók yfir líf hans í áraraðir. Valdimar, sem er nýjasti gesturinn í hlaðvarpu Sölva Tryggvasonar  segist hafa þurft að fara mjög djúpt til þess að finna loksins leiðina út:

,,Ég var alinn upp í alkóhólisma og það var sterkt í báðum ættum hjá mér. Alveg frá því að ég drakk í fyrsta skipti 13-14 ára gamall, þá var alveg ljóst að ég gat ekki drukkið. En ég man enn þann dag í dag þegar ég drakk í fyrsta skipti. Ég þambaði vodkaflösku og ég man að í blissinu sem kom að ég hugsaði: ,,Af hverju eru ekki allir alltaf fullir?”. Drykkjan hjá mér var svolítið brennd þessu marki. Ég vildi bara komast sem fyrst í þetta algleymisástand og var svo bara áfengisdauður mjög fljótt. Svo komst ég í hassið þegar ég var orðinn 17-18 ára og þá tók það tímabil við alveg af fullum krafti. Ég var svo skiptinemi í Mið-Ameríku í heilt ár og þar hélt þetta áfram. Ég drakk og reykti eins mikið og ég komst upp með. Ég ferðaðist á puttanum frá Kosta-Ríka í gegnum Gvatemala, Hondúras og svo Mexíkó og alla leið upp til New York,” segir Valdimar, sem hélt svo þessu líferni áfram eftir að hann útskrifaðist sem leikari:

,,Svo þegar ég útskrifaðist, þá fékk ég strax stór hlutverk í sýningum sem voru mjög vinsælar og sýndar nánast á hverju kvöldi. Það varð strax þannig að um leið og sýningin var búin fór ég bara á barinn og drakk mig dauðan. Ég var farinn að flýta mér að drekka mig dauðan, þannig að ég myndi allavega sofna. Svo vaknaði ég kannski um miðjan dag daginn eftir og fór í kalda sturtu og bað til guðs einlæglega að ef ég kæmist í gegnum næstu sýningu án þess að verða mér til skammar, þá myndi ég hætta að drekka. En svo um leið og sýningin var búin tók djöfullinn við. Þetta er í raun bara skilgreining á því hvað fíkn er. Svo kom ég loksins að þeim punkti að þetta gat ekki haldið áfram. Ég hafði í raun vitað allan tímann að ég ætti ekki séns í þetta, en ég þurfti að fara mjög langt til þess að ná loksins að hætta. Þessi tegund af fíkn kallar á skuggahliðarnar í manni og það gerðist mjög margt á þessum árum sem ég er ekki stoltur af.”

Valdimar fór á tímabili til Los Angeles, þar sem hann ákvað að reyna fyrir sér. Hann fékk fljótlega starf sem fyrirsæta í stórri Calvin Klein auglýsingaherferð. Í kjölfarið fékk hann umboðsmann og fékk fljótlega áheyrnarprufu fyrir kvikmynd. En það var ekki fyrr en hann svo skoðaði handritið allt að hann áttaði sig á því að hann væri að lesa fyrir erótíska kvikmynd. Valdimar hafði lítinn áhuga á slíku hlutverki, en hugsaði sig þó um áður en hann ákvað sig endanlega:

,,Það sem endanlega fékk mig til þess að segja nei við þessu hlutverki var tilhugsunin um að íslenskir fjölmiðlar fengju veður af myndinni og myndu fjalla um það. Þar af leiðandi myndi amma mín lesa um ljósblá ævintýri mín í Los Angeles og ég gat ekki hugsað mér það. Þó svo að vissulega hafi það verið ákveðin freisting að fá borgað fyrir þetta hlutverk þá var tilhugsunin um ömmu því yfirsterkari. Maður hefur svona ákveðin prinsipp í lífinu og þetta var eitt af þeim, að láta ekki ömmu sjá mig í ljósblárri mynd,“ segir Valdimar, sem síðar komst þó að því að amma hans hefði líklega bara tekið vel í myndina ef Valdi hefði tekið að sér hlutverkið:

,,Fljótlega eftir að ég kom heim og heimsótti hana sagði hún mér frá leikriti sem hún hafði sett upp með eldri borgurum í Munaðarnesi. Þegar ég fór að spyrja hana betur út í þetta bætir hún svo alsæl við: „Og heldurðu að ég hafi bara ekki fengið að leika melluna?“

Valdimar vann sem leikari sleitulaust í meira en tvo áratugi, mest í leikhúsum, en svo kom loksins að kaflaskilum:

„Ég útskrifaðist úr Leiklistarskólanum 1986 og var í raun alveg á fullu í tuttugu og þrjú ár eftir það. Maður var stanslaust að, daga, kvöld og helgar í leikhúsinu og svo kom sumarið og þá var maður á kafi í bíómyndum. Eftir að hafa haldið þannig áfram í tuttugu og þrjú ár fór ég að hugsa minn gang. Ég var á þeim tíma að fara í gegnum erfitt tímabil í lífi mínu,  var að fara í gegnum skilnað og leika í erfiðu verki sem gekk talsvert nærri mér. Ofan á það var ég líka kominn á milli kynslóða í leikhúsinu, var orðinn elstur af þeim „ungu“ og það vissi eiginlega enginn hvað átti að láta mann gera.”

Valdimar hefur undanfarin ár unnið sem staðahaldari í veiðiám og einnig farið með ferðamenn um landið. Hann segist njóta sín í botn í þessum störfum og kann best við sig úti í náttúrunni:

,,Það er virkilega gaman að kynnast fólki úr öllum heimshornum sem er jafnólíkt og það er margt. Ég hef eignast vini um allan heim í gegnum þetta starf. Einn daginn er maður með vinkonuhóp frá Indlandi og þann næsta er maður orðinn einkavinur einhverra forstjóra hjá Goldman Sachs sem ferðast um á Falcon einkaþotu og er eitthvað að fíflast í þeim. Þegar fólk kemur til að skoða Ísland er það komið úr sínu daglega hlutverki og í burtu frá því sem það þekkir. Það er ekki það sama að vera á sínum heimavelli eða vera mættur í bílinn hjá Valda!,” segir Valdimar, sem segir alltaf jafngaman að sjá fólk verða uppnumið af víðáttunni og náttúrunni á Íslandi:

,,Við erum auðvitað öll bara bara hluti af þessari náttúru og það sameinar fólk einhvern vegin að vera úti í náttúrunni og vera komið burt frá stórborgunum. Það hefur verið gaman að fylgjast með því hvernig ferðamannaiðnaðurinn hefur vaxið á síðustu árum og hvað margt jákvætt hefur gerst. Við Íslendingar erum í grunninn uppskerufólk, fólkið sem lifði af hérna var fólkið sem gat unnið sólarhringnum saman við að bjarga sér og nú í dag erum við enn með þetta hugarfar. Við erum samblanda af þessu stjórnleysi og svo hálfgerðri minnimáttarkennd.”

Hægt er að nálgast viðtalið við Valdimar og öll viðtöl og hlaðvörp Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Háklassa vændiskona fékk 650 þúsund krónur fyrir fjögurra tíma vinnu – „Ég myndi aldrei mæla með þessu starfi fyrir einhvern“

Háklassa vændiskona fékk 650 þúsund krónur fyrir fjögurra tíma vinnu – „Ég myndi aldrei mæla með þessu starfi fyrir einhvern“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hin raunverulega Martha úr Baby Reindeer hótar Stephen King

Hin raunverulega Martha úr Baby Reindeer hótar Stephen King