Útlit leikkonunnar, sem er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í American Pie kvikmyndunum, hefur verið talsvert á milli tannanna á fólki í gegnum árin.
Fyrir tveimur árum birti hún myndir af sér í bikiníi á Instagram og varð í kjölfarið fyrir líkamssmánun.
Margir aðdáendur sögðust hafa áhyggjur af stjörnunni vegna holdafars hennar. Hún fékk einnig fjölda ljótra athugasemda sem hún endaði með að svara í nýrri færslu.
Sjá einnig: Tara Reid birti nýjar myndir og varð fyrir líkamssmánun
Í viðtali við The Los Angeles Inquisitor svaraði Tara fyrir sig. „Ég er ekki með anorexíu og hef aldrei verið og ég er klárlega ekki með búlimíu. Ég hata að æla svo það er ekki að fara að gerast, og ég elska mat allt of mikið,“ sagði hún.
„Þannig fólk sem segir að ég glími við anorexíu eða búlimíu, það hefur rangt fyrir sér. Þannig hættið þessu, látið mig í friði. Talið um eitthvað annað.“
Myndirnar úr viðtalinu hafa vakið athygli og er hún sögð nær óþekkjanleg, sérstaklega miðað við hvernig hún leit út fyrir nokkrum vikum.
Fyrr í október mætti hún á viðburð í Los Angeles þar sem útlit hennar er talsvert öðruvísi.