„Bjóddu konunni þinni á mjög heita kvöldstund. Hún launar þér það þegar þið komið heim. Las Vegas Christmas Show. Tryggðu þér miða á Tix.is,“ sagði í auglýsingunni.
Miðasalan Tix birti yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni síðdegis í gær þar sem fram kom að umrædd auglýsing samræmdist ekki með neinum hætti stefnu né viðhorfi fyrirtækisins.
Þó var tekið fram að auglýsingin tengdist ekki Tix miðasölu eða væri borin undir fyrirtækið. Þar sem Tix var nefnt á nafn í auglýsingunni virðist fyrirtækið hafa séð sig knúið til að senda út fyrrgreinda yfirlýsingu.
„Í kjölfar ábendingar frá viðskiptavin um tilvist auglýsingarinnar var haft samband við viðburðarhaldara og auglýsingin tekin úr birtingu. Tix miðasala styður heilshugar baráttu gegn ofbeldismenningu og harmar birtingu á þessari auglýsingu.“
Geir ræddi málið við Vísi og sagðist ekki vilja búa til vandræði að óþörfu og því hafi auglýsingin verið tekin úr loftinu. Hann skammist sín þó ekkert fyrir auglýsinguna enda sé hún „byggð á sannsögulegum viðburðum“ eins og það er orðað.
Geir sagðist enn fremur vera stoltur af umræddum tónleikum enda mikil vinna verið lögð í þá. Heimsklassahljóðfæraleikarar frá Hollywood komi að verkefninu og þá fái ungir og efnilegir söngvarar tækifæri á að syngja.
Nánar er fjallað um málið á Vísi.