fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fókus

Áhorfendur gengu út af uppistandi Dave Chappelle – Þetta gerði útslagið

Fókus
Mánudaginn 23. október 2023 09:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski skemmtikrafturinn Dave Chappelle þykir stundum umdeildur og virðist eiga það til að fara yfir strikið.

Sú var raunin á dögunum þegar hann hélt uppistand í TD Garden í Boston þar sem þúsundir áhorfenda voru samankomnir til að horfa á kappann.

Í umfjöllun Wall Street Journal kemur fram að Chappelle hafi ákveðið að tjá sig um stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs, stríð Ísraelsmanna við Hamas-samtökin í Palestínu, og féll afstaða hans ekkert sérstaklega vel í kramið hjá hópi áhorfenda.

Chappelle hjólaði í Ísraelsmenn og sagði þá fremja „stríðsglæpi“ með því að fremja morð á saklausum borgurum. Chappelle er þó sagður hafa fordæmt innrás Hamas-samtakanna í Ísrael en gagnrýni hans beindist hins vegar fyrst og fremst að Ísrael. Gagnrýndi hann þá fyrir að skrúfa fyrir vatn inn á Gaza-svæðið og koma í veg fyrir að nauðsynlegar vörur kæmust þangað.

Í frétt Wall Street Journal kemur fram að áhorfendur hafi gert köll að Chappelle og sagt honum að þegja.

„Hluti áhorfenda fagnaði því sem hann sagði en mér var hreinlega óglatt. Ég sneri mér að konunni minni og vinum og sagði að nú væri sennilega best að fara. Það voru margir gyðingar sem yfirgáfu salinn,“ segir einn þeirra sem var á sýningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum
Fókus
Í gær

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram