fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fókus

Bangsar streyma til landsins í fögnuð Bangsafélagsins

Fókus
Miðvikudaginn 30. ágúst 2023 10:43

Mynd/ Reykjavík Bear

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bangsafélagið stendur fyrir árlegri hátíð félagsins Reykjavík Bear dagana 31. ágúst til 3. september.

Lestu fréttatilkynningu um viðburðinn hér að neðan:

„Rúmlega 100 erlendir bangsar víðsvegar úr heiminum mæta til Íslands og fagna með Bangsafélaginu. Reykjavík bear hátíðin í ár er nokkuð stærri en í fyrra með tvöfalt fleiri miðum seldum en áður. Hátíðin hefur stækkað ár frá ári og hefur aldrei verið vinsælli. Hátíðarpassar hafa verið uppseldir frá því í júní. Að auki má gera ráð fyrir talsverðum fjölda bangsa sem búa á Íslandi á hátíðinni sem og aðdáendum þeirra. Bangsafélagið er hagsmunafélag Samtakanna ’78 og félagsskapur bangsa (e. Bears) á Íslandi.

Mynd/ Reykjavík Bear

Allir eru velkomnir á Reykjavík Bear, sís, trans eða kynsegin og alveg sama hvernig fólk lítur út en líkamsskömm verður að skilja eftir heima. Bangsar eiga það oftast sameiginlegt að vera ljúfir, hressir, skemmtilegir og góðir við náungann. Bangsafélagið var stofnað árið 2019 í kringum árlegu bangsahátíðina Reykjavík Bear. Að auki heldur Bangsafélagið fjölda viðburða, eflir samstöðu og félagsskap og vinnur að því að auka sýnileika bangsa og þeirra sem tilheyra því samfélagi með einum eða öðrum hætti. Bangsar vita að það eru allskonar líkamar og allskonar fólk. Bangsar vita að þegar maður lítur ekki út eins og fólkið í tískutímaritum og flest fólk í sjónvarpi er auðvelt að fara að trúa því að maður sé þess ekki verðugur að vera elskaður. Bangsarnir sameinast um lífsgleði, samstöðu og samkennd.

Reykjavík Bear stendur yfir í fjóra daga með nokkrum fjölda skemmtana en þar á meðal eru heimsókn í Bláa lónið, ferð um Gullna hringinn, bangsabrunch, heimsókn í Sky Lagoon og bangsapartý öll kvöldin. Á föstudagskvöld er Top-off partý á Gauknum þar sem gestum er boðið að skemmta sér berir að ofan og meðal skemmtikrafta eru DJ Mighty Bear sem blandar saman hinsegin menningu, drag og framúrstefnulegum tónum og DJ Neo Scott sem kemur frá Spáni. Á laugardag er svo aðalpartý hátíðarinnar sem haldið er á Sunset Bar í Reykjavík EDITION Þar mun DJ Joff frá Frakklandi skemmta alþjóðlegum hópi bangsa og ásamt heimafólki sem vill skemmta sér með þeim.“

Mynd/ Reykjavík Bear

Upplýsingar um viðburðinn og Bangsafélagið má finna á https://bangsafelagid.is og https://reykjavikbear.is/ og Facebook-síðu Reykjavík Bear: https://www.facebook.com/rvkbear

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum
Fókus
Í gær

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram