Söngvararnir Aron Can, Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör, Jón Jónsson og Rúrik Gíslason sameina krafta sína í strákabandinu IceGuys, en í dag kom þeirra annað lag, Krumla, út.
Textinn er eftir fimmmenningana, Ásgeir Orri Ásgeirsson (StopWaitGo) sér um útsetningu, leikstjórar myndbandsins eru Allan Sigurðsson og Hannes Þór Arason og danshöfundur er Stella Rósenkranz, en strákarnir lögðu á 15 klukkustunda vinnu til að fullkomna danssporin.
„Lagið nær á skemmtilegan hátt að flétta saman gamla góða Krumlu-leikinn og þessu týpíska „haltu mér, slepptu mér“ sambandi tveggja einstaklinga,“ segir Jón fyrir hönd strákanna.
Við erum á því að hér er komið nýjasta strákaband landsins og viljum þá beint í Eurovision!