Helena Hansdóttir Aspelund myndlistarmaður og Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, tónlistarmaður, eru nýtt par. Smartland greindi frá.
Helena rekur Týsgallerí, hefur kennt myndlist og keyrt ferðamenn um landið á eigin rútu. Dr. Gunni hefur spilað með Unun og Bless auk fleiri hljómsveita, starfað sem blaðamaður og útvarpsmaður, dómari í Ísland Got Talent á Stöð 2 og stýrði hann hinum vinsæla spurningaþætti Popppunkti á Ríkissjónvarpinu.