Gunnar Nelson bardagaíþróttamaður og Fransiska Björk Hinriksdóttir, eiga von á barni. Fyrir eiga þau dóttur, fædd í október 2019, og Gunnar á son úr fyrra sambandi.
„Áætluð koma þriðju krúttmúsarinnar er í ágúst,“ skrifaði parið á samfélagsmiðlana og deildi með myndum af systkinunum með sónarmynd. Einnig birtu þau myndband af Gunnari slá golfkúlu með þeim afleiðingum að bleiki kynjaliturinn sprakk.