fbpx
Föstudagur 23.maí 2025
Fókus

Stefnumótasérfræðingur segir að aldrei eigi að deita karla á þessum aldri

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 1. maí 2022 20:30

Hvaða karlar gera konur hamingjusamar?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er einn aldurshópur karla sem á að forðast þegar kemur að því að deita. Þetta segir Jana Hocking, 35 ára áströlsk kona sem býr í Sydney. Hún er sögð vera stefnumótasérfræðingur eftir að hafa stundað stefnumót árum saman í leit að hinum eina rétta.

Mirror segir að hún hafi fundið út úr hvaða aldurshópi karla konur eiga að taka stóran sveig fram hjá ef þær séu að leita sér að manni sem er „tilbúinn í eitthvað alvarlegt“.

Þetta eru karlar á aldrinum 30 til 40 ára. Rökin fyrir þessu eru að sögn Hocking að allir þeir „góðu“ á þessum aldri eru fráteknir. Með „góðir“ á hún við þá karla sem vilja stofna heimili, kaupa hund og bíl og þá væntanlega huga að barneignum.

Hún sagði að það séu þó til einstaka „góðir“ einhleypir karlar á fertugsaldri en þeir séu bara ekki eins tilbúnir í fast samband.

Jana Hocking. Mynd:Jana Hocking/Instagram

Hún veitir kynsystrum sínum því það ráða að leita að körlum sem eru á seinni hluta þrítugsaldurs því þeir séu einnig í leit að rómantík. Einnig komi karlar yfir fertugu vel til greina því þeir séu oft að leita að ástinni á nýjan leik eftir skilnað.

Hún segist sjálf hafa byrjað að deita karla yfir fertugu og segist ánægð með þá ákvörðun sína. Þeir séu góðir í að deita upp á gamla mátann. Þeir hringi til að spjalla, deiti bara eina manneskju í einu og séu lélegir í „að spila spilið“ sem er kostur að hennar sögn.

„Þeir geta auðvitað borið einhverja bagga með sér, þreyttir eftir misheppnað samband og börn en um leið hafa þeir sannað að þeir eru ekki hræddir við að binda sig, að minnsta kosti í einhvern tíma,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Einstaklega sjarmerandi hús í miðborginni

Einstaklega sjarmerandi hús í miðborginni
Fókus
Í gær

Vilja að Bianca verði handtekin á Spáni: „Maður heyrði fólk segja: Eru þetta alvöru geirvörturnar hennar?“

Vilja að Bianca verði handtekin á Spáni: „Maður heyrði fólk segja: Eru þetta alvöru geirvörturnar hennar?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Situr enn í henni hvað hún fann í ruslinu eftir að Weinstein nauðgaði henni

Situr enn í henni hvað hún fann í ruslinu eftir að Weinstein nauðgaði henni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sauð upp úr á rauða dreglinum: Varalesari varpar ljósi á hvað Denzel Washington sagði

Sauð upp úr á rauða dreglinum: Varalesari varpar ljósi á hvað Denzel Washington sagði