fbpx
Föstudagur 23.maí 2025
Fókus

Sögusagnir ganga um að Kanye sé horfinn

Fókus
Fimmtudaginn 29. desember 2022 14:30

Kanye West hefur ekki gengist við því að senda hugskeytið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rapparinn og Kanye West hefur verið mikið í umræðunni undanfarið. Nú ganga þær sögur að rapparinn sé horfinn, en fyrrverandi fjármálastjóri Kanye hefur ekki náð að hafa uppi á rapparanum til að stefna honum.

Thomas St John, fyrrverandi fjármálastjóri rapparans, hefur reynt að stefna fyrrum vinnuveitanda sínum og fyrirtæki hans, Yeezy. Samkvæmt The U.SSun óskaði Thomas eftir því við dómstóla að fá framlengdan frest til að stefna Kanye í máli sínu eftir margar misheppnaðar tilraunir til að ná í skottið á rapparanum.

Varð þetta til þess að á Twitter hófst sá orðrómur að rapparinn sé hreinlega týndur.

Thomas hefur heldur ekki náð í lögmenn Kanye þar sem rapparinn er ekki með neinn lögmann á sínum snærum.

Samkvæmt gögnum sem lögmenn Thomas lögðu fram er þeir óskuðu eftir framlengda frestinum hefur reynst ómögulegt að staðfesta hvar Kanye er til húsa þessa daganna og því hefur ekki verið mögulegt að afhenda honum stefnu í málinu. Þá hefur verið reynt að stefna rapparanum með því að senda honum tölvupóst á fjölda mögulegra netfanga.

Fyrirhugað dómsmál varðar 18 mánaða loforð um starf sem Kanye gerði við Thomas. Fer Thomas fram á gífurlegar fjárhæðir í skaðabætur, eða 4,5 milljónir Bandaríkjadala sem eru um 650 milljónir íslenskra króna.

Síðasta mynd sem blaðaljósmyndarar náðu af rapparanum var tekin 18. desember þegar hann fór með tveimur börnum sínum í kirkju.

Það var svo Twitter-aðgangurinn Daily Loud sem tísti „Kanye West er sagður horfinn og ekki hefur náðst í hann vikum saman sakvæmt fyrrum fjármálastjóra“

Twitter-aðgangurinn yzyupdates segir að það hafi þó bara verið í fyrradag sem Kanye mætti seinast til kirkju og því líklegt að rapparinn sé ekki eins týndur og netheimar virðast halda.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Einstaklega sjarmerandi hús í miðborginni

Einstaklega sjarmerandi hús í miðborginni
Fókus
Í gær

Vilja að Bianca verði handtekin á Spáni: „Maður heyrði fólk segja: Eru þetta alvöru geirvörturnar hennar?“

Vilja að Bianca verði handtekin á Spáni: „Maður heyrði fólk segja: Eru þetta alvöru geirvörturnar hennar?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Situr enn í henni hvað hún fann í ruslinu eftir að Weinstein nauðgaði henni

Situr enn í henni hvað hún fann í ruslinu eftir að Weinstein nauðgaði henni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sauð upp úr á rauða dreglinum: Varalesari varpar ljósi á hvað Denzel Washington sagði

Sauð upp úr á rauða dreglinum: Varalesari varpar ljósi á hvað Denzel Washington sagði