Edda Falak kom eins og stormsveipur á íslenskan hlaðvarpsmarkað árið 2020 og hefur síðan þá haldið úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, Eigin Konur, þar sem hún fær til sín viðmælendur til að ræða um erfið og átakanleg málefni.
Edda gaf nýverið út sína fyrstu bók, „Það sem ég hefði viljað vita“, þar sem má lesa um hugleiðingar hennar um jafnréttisbaráttu, sjálfsmynd, ofbeldi, óheilbrigð sambönd, skömm og margt fleira.
Sjá einnig: Edda Falak sendir frá sér bók – „Hversu margir hérna inni ætli hati mig?“
Þórdís Elva fékk bókina í gær og birti mynd af skilaboðunum sem Edda skrifaði til hennar.
„Elsku Þórdís Elva. Takk fyrir allt sem þú gerir. Takk fyrir að vera þú,“ skrifaði Edda
Þórdís sendi henni fallega kveðju á móti.
„Ég vil þakka þér líka, fyrir að vera aflið sem hristir upp í samfélaginu okkar og býr til nýtt rými fyrir okkur þar sem við náum fram jafnrétti.“
Þórdís var gestur Eddu í júní á þessu ári til að ræða um niðurstöður dómsmáls leikaranna Johnny Depp og Amber Heard.
Sjá einnig: Þess vegna hefur Þórdís Elva áhyggjur af niðurstöðum Depp/Heard dómsmálsins